Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra vill ekki svara því hvort viðeigandi sé að Sigurjón Þórðarson formaður atvinnuveganefndar komi að meðferð reglugerðarbreytinga á strandveiðum. Hún segist ekki þekkja eignarhald Sigurjóns.

Fram kom í Morgunblaðinu í gær að Sigurjón hefði selt hlut sinn í Sleppu ehf. sem gerir út strandveiðibát en sitji þrátt fyrir það áfram sem stjórnarformaður og fari með prókúru félagsins. Eiginkona hans fer áfram með 49% hlut í félaginu.
Sigurjón vildi sem minnst tjá sig um söluna þegar eftir því var leitað og nýr eigandi að 51% hlut í útgerðinni, Sigurbjörg Áróra Ásgeirsdóttir, vildi heldur ekki svara spurningum um málið.