Jón Gnarr gagnrýnir orðfæri ráðherra

Alþingi | 5. júní 2025

Jón Gnarr gagnrýnir orðfæri ráðherra

Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, gefur lítið fyrir ummæli Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra þess efnis að kaffiskúr leigubílsstjóra á Keflavíkurflugvelli sé „nyrsta moska í heimi“. 

Jón Gnarr gagnrýnir orðfæri ráðherra

Alþingi | 5. júní 2025

Jón Gnarr gagnrýnir innviðaráðherra í Facebook-færslu sinni.
Jón Gnarr gagnrýnir innviðaráðherra í Facebook-færslu sinni. Samsett mynd mbl.is/Karítas

Jón Gn­arr, þingmaður Viðreisn­ar, gef­ur lítið fyr­ir um­mæli Eyj­ólfs Ármanns­son­ar innviðaráðherra þess efn­is að kaf­fiskúr leigu­bíls­stjóra á Kefla­vík­ur­flug­velli sé „nyrsta moska í heimi“. 

Jón Gn­arr, þingmaður Viðreisn­ar, gef­ur lítið fyr­ir um­mæli Eyj­ólfs Ármanns­son­ar innviðaráðherra þess efn­is að kaf­fiskúr leigu­bíls­stjóra á Kefla­vík­ur­flug­velli sé „nyrsta moska í heimi“. 

Þingmaður­inn ger­ir ákvörðun Isa­via um að loka skúrn­um að um­fjöll­un­ar­efni sínu í færslu á Face­book-síðu sinni fyrr í dag. 

Jón ger­ir þar lítið úr fyrr­nefnd­um um­mæl­um innviðaráðherra og bend­ir á það að nyrsta moska í heimi sé vissu­lega staðsett í Síberíu, 300 kíló­metr­um norðan við heim­skauts­baug.

Seg­ir ástæðurn­ar vera fyr­ir­slátt

Að sögn Jóns er ákvörðun Isa­viu um að loka skúrn­um „harka­leg aðgerð út af litlu til­efni“.

Guðjón Helga­son, upp­lýs­inga­full­trúi Isa­via, bar það fyr­ir sig í sam­tali við mbl.is í gær að ástand skúrs­ins upp­fyllti ekki kröf­ur sem gerðar eru til hús­næðis af þessu tagi. Sal­ern­isaðstaða skúrs­ins var meðal ann­ars ekki tal­in boðleg.

Jón seg­ir í færslu sinni að ástæðurn­ar sem gefn­ar séu fyr­ir lok­un­inni séu „ótta­leg­ur fyr­ir­slátt­ur“.

Hann bæt­ir við að hann hafi séð ljós­mynd­ir inn­an úr skúrn­um og að ekk­ert hafi vakið at­hygli hans út frá ljós­mynd­un­um, um dæmi­gerðan ís­lensk­an vinnu­skúr hafi verið að ræða.

Ekk­ert ónæði eða yf­ir­taka

Hann seg­ir að öll umræða sem hann hafi heyrt sé á þann hátt að bæna­haldið í skúrn­um sé það sem hafi verið að. 

Jón tal­ar um það þegar hann var bú­sett­ur í borg­inni Hou­st­on í Texas-ríki á árum áður. Hann seg­ir að þeir 70.000 múslim­ar sem búi í borg­inni hafi iðulega farið afsíðis til að biðja.

Hann seg­ir þetta aldrei hafa valdið sér ónæði. Að sögn Jóns er um að ræða eðli­leg­an hluta af dag­legu lífi og bend­ir á það að trúfrelsi sé verndað í stjórn­ar­skrá. 

mbl.is