Ferðabannið endurspegli „kynþáttafordóma“

Íran | 7. júní 2025

Ferðabannið endurspegli „kynþáttafordóma“

Íran fordæmdi í dag ferðabann Bandaríkjanna á Írana og borgara ellefu annarra landa, aðallega frá Mið-Austurlöndum og Afríku, og sagði ákvörðun yfirvalda Bandaríkjanna vera merki um „kynþáttafordóma“.

Ferðabannið endurspegli „kynþáttafordóma“

Íran | 7. júní 2025

Donald Trump Bandaríkjaforseti undirritaði á miðvikudag forsetaúrskurð sem endurvekur víðtækar …
Donald Trump Bandaríkjaforseti undirritaði á miðvikudag forsetaúrskurð sem endurvekur víðtækar takmarkanir sem minna á ferðabann hans frá fyrra kjörtímabili. AFP

Íran for­dæmdi í dag ferðabann Banda­ríkj­anna á Írana og borg­ara ell­efu annarra landa, aðallega frá Mið-Aust­ur­lönd­um og Afr­íku, og sagði ákvörðun yf­ir­valda Banda­ríkj­anna vera merki um „kynþátta­for­dóma“.

Íran for­dæmdi í dag ferðabann Banda­ríkj­anna á Írana og borg­ara ell­efu annarra landa, aðallega frá Mið-Aust­ur­lönd­um og Afr­íku, og sagði ákvörðun yf­ir­valda Banda­ríkj­anna vera merki um „kynþátta­for­dóma“.

Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti und­ir­ritaði á miðviku­dag­inn for­seta­úrsk­urð sem end­ur­vek­ur víðtæk­ar tak­mark­an­ir sem minna á ferðabann hans frá fyrra kjör­tíma­bili. Bannið er rétt­lætt á grund­velli þjóðarör­ygg­is í kjöl­far sprengju­árás­ar á sam­komu stuðnings­fólks Ísra­ela í Col­orado.

Alireza Hashemi-Raja, emb­ætt­ismaður hjá ír­anska ut­an­rík­is­ráðuneyt­is­inu, sagði aðgerðina, sem tek­ur gildi 9. júní, „skýrt merki um kynþátta­hat­ur meðal banda­rískra yf­ir­valda.“

Auk Írans bein­ist bannið að rík­is­borg­ur­um Af­gan­ist­ans, Mjan­mar, Tsjad, Kongó-Brazza­ville, Miðbaugs-Gín­eu, Erít­r­eu, Haítí, Líb­íu, Sómal­íu, Súd­ans og Jemen. Bann að hluta til var sett á ferðamenn frá sjö öðrum lönd­um.

„Brjóta gegn grund­vall­ar­regl­um alþjóðalaga“ 

Hashemi-Raja sagði stefn­una „brjóta gegn grund­vall­ar­regl­um alþjóðalaga“ og svipta „100 millj­ón­ir manna rétt­in­um til að ferðast, ein­göngu á grund­velli þjóðern­is þeirra, eða trú­ar“.

Hann sagði að bannið myndi „hafa í för með sér alþjóðlega ábyrgð fyr­ir banda­rísku rík­is­stjórn­ina“ án þess að út­skýra það nán­ar.

Íran og Banda­rík­in slitu stjórn­mála­sam­bandi skömmu eft­ir ís­lömsku bylt­ing­una árið 1979 og hafa sam­skipt­in þeirra á milli verið mjög stirð síðan.

Heim­kynni flestra Írana utan Írans

Banda­rík­in eru heim­kynni flestra Írana utan Írans. Sam­kvæmt töl­um frá ut­an­rík­is­ráðuneyti Írans voru um 1,5 millj­ón­ir Írana í Banda­ríkj­un­um árið 2020.

Fleiri en tíu ein­stak­ling­ar særðust í árás­inni í Col­orado. Árás­armaður­inn er egypsk­ur rík­is­borg­ari sem hafði dvalið í Banda­ríkj­un­um sem ferðamaður leng­ur en vega­bréfs­árit­un hans heim­ilaði. 

mbl.is