Hótaði Musk „alvarlegum afleiðingum“

Hótaði Musk „alvarlegum afleiðingum“

Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði Elon Musk, ríkasta manni í heimi, „alvarlegum afleiðingum“ ef hann ætli sér að refsa Repúblikönum sem greiða atkvæði með umdeildu fjárlagafrumvarpi.

Hótaði Musk „alvarlegum afleiðingum“

Donald Trump Bandaríkjaforseti | 7. júní 2025

Donald Trump Bandaríkjaforseti og Elon Musk, ríkasti maður í heimi, …
Donald Trump Bandaríkjaforseti og Elon Musk, ríkasti maður í heimi, í Hvíta húsinu í Washington-borg í Bandaríkjunum í mars. AFP/Roberto Schmidt

Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti hótaði Elon Musk, rík­asta manni í heimi, „al­var­leg­um af­leiðing­um“ ef hann ætli sér að refsa Re­públi­kön­um sem greiða at­kvæði með um­deildu fjár­laga­frum­varpi.

Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti hótaði Elon Musk, rík­asta manni í heimi, „al­var­leg­um af­leiðing­um“ ef hann ætli sér að refsa Re­públi­kön­um sem greiða at­kvæði með um­deildu fjár­laga­frum­varpi.

Um­mæli Trumps féllu í sam­tali við NBC-frétta­stof­una í dag en fyrr­um fé­lag­arn­ir Trump og Musk hafa gagn­rýnt hvor ann­an á eig­in sam­fé­lags­miðlum í vik­unni.

Orðaskipt­in hóf­ust er Must gagn­rýndi „One Big Beautif­ul Bill“ Trumps eða „stóra fal­lega frum­varpið“ sem varðar vel­ferðar­kerfi, landa­mæra­mál, heil­brigðis­kerfi, op­in­ber­ar skuld­ir og hernaðar­mál Banda­ríkj­anna svo fátt eitt sé nefnt.

Eng­an áhuga á að laga sam­bandið við Musk

Nokkr­ir þing­menn sem voru á móti frum­varp­inu höfðu hvatt Musk, sem var einn stærsti fjár­hags­legi bak­hjarl Re­públi­kana­flokks­ins í for­seta­kosn­ing­un­um í fyrra, til að fjár­magna for­kosn­ing­ar gegn Re­públi­kön­um sem greiða at­kvæði með lög­un­um.

„Hann mun þurfa að borga fyr­ir það með mjög al­var­leg­um af­leiðing­um ef hann ger­ir það,“ sagði Trump við NBC án þess að til­greina hverj­ar þær af­leiðing­ar yrðu.

Hann sagði einnig að hann hefði „eng­an“ áhuga á að laga sam­band sitt við Musk og að hann hefði „eng­in áform um að tala við hann.“

Eyddi Ep­stein-færsl­unni

Í síðustu viku hældi Trump Musk er sá síðar­nefndi lét af störf­um sem yf­ir­maður í nýrri deild hagræðing­ar í rík­is­rekstri (DOGE).

Brest­ir virt­ust koma í ljós í sam­bandi þeirra stuttu síðar þegar Musk lýsti hinu stóra og fal­lega frum­varpi sem „viður­styggð“.

Trump svaraði fyr­ir sig í ræðu í Hvíta hús­inu í kjöl­farið og hafa þeir síðan skipst á því að skjóta hvorn á ann­an á sam­fé­lags­miðlum.

Deil­urn­ar náðu síðan ákveðnum hápunkti á fimmtu­dag­inn þegar Musk sagði á sam­fé­lags­miðlin­um X að nafn Trumps væri að finna í Ep­stein-skjöl­un­um.

Eitt­hvað virðist sem svo að fé­lag­arn­ir fyrr­ver­andi hafi verið farn­ir að ró­ast en Trump sagðist óska Musk alls hins besta við fjöl­miðla í gær og svaraði Musk „sömu­leiðis“ á X.

Musk hef­ur nú eytt færsl­un­um á X sem hann bendl­ar Trump við Jef­frey Ep­stein.

mbl.is