Sér ekki hvernig menn ætla að klára þingið

Alþingi | 7. júní 2025

Sér ekki hvernig menn ætla að klára þingið

„Ég myndi bara segja það að það er eitthvert örlítið samtal byrjað, en ég persónulega sé bara ekki hvernig menn ætla að klára þetta, ég átta mig ekki á því,“ segir Stefán Vagn Stefánsson varaþingflokksformaður Framsóknarflokksins við mbl.is um komandi þinglok föstudaginn 13. júní.

Sér ekki hvernig menn ætla að klára þingið

Alþingi | 7. júní 2025

Stefán Vagn Stefánsson varaþingflokksformaður Framsóknarflokksins á erfitt með að gera …
Stefán Vagn Stefánsson varaþingflokksformaður Framsóknarflokksins á erfitt með að gera sér í hugarlund hvernig Alþingi fari í sumarfrí á föstudaginn miðað við gang mála. mbl.is/Eyþór

„Ég myndi bara segja það að það er eitt­hvert ör­lítið sam­tal byrjað, en ég per­sónu­lega sé bara ekki hvernig menn ætla að klára þetta, ég átta mig ekki á því,“ seg­ir Stefán Vagn Stef­áns­son varaþing­flokks­formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins við mbl.is um kom­andi þinglok föstu­dag­inn 13. júní.

Bend­ir Stefán á mörg, stór og flók­in þing­mál sem nú bíði af­greiðslu á inn­an við viku. „Þetta eru ofboðslega um­deild mál og það verður bara mjög snúið að koma þessu sam­an,“ seg­ir hann.

Grá­sleppa, bú­vöru­lög og kíló­metra­gjald

„Við eig­um eft­ir að ræða strand­veiðarn­ar, við erum að ræða bók­un 35 í ann­arri umræðu, við eig­um eft­ir að ræða fjár­auka­lög­in, við eig­um eft­ir að ræða fjár­mála­áætl­un, við eig­um eft­ir að ræða grá­slepp­una, við eig­um eft­ir að ræða bú­vöru­lög­in og kíló­metra­gjaldið. Ég nefni hérna bara nokk­ur mál sem eru mjög póli­tísk og stjórn­ar­andstaðan hef­ur áhyggj­ur af,“ seg­ir Stefán Vagn enn frem­ur og lýk­ur máli sínu:

„Auðvitað hef­ur á end­an­um alltaf verið samið, en ég veit ekki hvernig menn ætla að gera þetta.“

mbl.is