„Þá var alveg upplagt að nota stera“

Edrúland | 7. júní 2025

„Þá var alveg upplagt að nota stera“

Daníel Rafn Guðmundsson ræddi við Dag­mál mbl.is um fang­elsis­kerfið á Íslandi og deildi eig­in reynslu. Hann hefur verið edrú í 10 ár, allt frá því að hann leitaði Guðs í litlu kirkj­unni á Staðar­felli og fékk um leið að finna upp­lif­un sem breytti öllu.

„Þá var alveg upplagt að nota stera“

Edrúland | 7. júní 2025

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Daní­el Rafn Guðmunds­son ræddi við Dag­mál mbl.is um fang­els­is­kerfið á Íslandi og deildi eig­in reynslu. Hann hef­ur verið edrú í 10 ár, allt frá því að hann leitaði Guðs í litlu kirkj­unni á Staðar­felli og fékk um leið að finna upp­lif­un sem breytti öllu.

    Daní­el Rafn Guðmunds­son ræddi við Dag­mál mbl.is um fang­els­is­kerfið á Íslandi og deildi eig­in reynslu. Hann hef­ur verið edrú í 10 ár, allt frá því að hann leitaði Guðs í litlu kirkj­unni á Staðar­felli og fékk um leið að finna upp­lif­un sem breytti öllu.

    „Náð Guðs er mögnuð – og náðin er ný á hverj­um degi,“ seg­ir Daní­el og bæt­ir við að náð Guðs sé í boði fyr­ir alla, „ég er ekk­ert sér­stak­ur“.

    Hann lýs­ir því að hafa upp­lifað svaka­lega and­lega vakn­ingu og að fíkn hafi verið tek­in af hon­um á auga­bragði, þó að ferlið hafi svo tekið nokkra mánuði.

    „Ég hætti að reykja, hætti að taka kvíðalyf, hætti að taka svefn­lyf. Það bara fór allt kerfið í lag.“

    Edrú víta­hring­ur­inn

    Daní­el hafði mis­notað stera mikið og lýs­ir því að hafa fest sig margoft í edrú víta­hring. Hann hafi farið í meðferð, eða hætt sjálf­ur, og þá hafi fyrsta hugs­un­in verið að fara í rækt­ina að rífa sig í gang. „Þá var al­veg upp­lagt að nota stera. Þá var maður sneggri að þessu“.

    Alkó­hólist­inn sé mikið fyr­ir skyndi­lausn­ir og hann hafi aldrei séð neitt rangt við þetta.

    „Hring­ur­inn minn var samt alltaf þannig að ég byrjaði að nota stera og þeir eru hug­ar­fars­breyt­andi. Þá fór maður í egó­ist­ann og allt þetta og maður í raun­inni var orðinn bara eins og maður var í neyslu, edrú, á ster­um. Svo tók maður bara kvíðalyf eða eitt­hvað, til þess að stemma sig niður,“ seg­ir Daní­el.

    „Ég sá þetta aldrei, en Guð sýndi mér þetta.“

    Eig­in skiln­ing­ur kom hon­um í tómt vesen

    Seg­ist hann á þeim tíma ekk­ert hafa skilið af hverju hann væri kom­inn aft­ur og aft­ur í sömu stöðu. Þar af leiðandi hafi hann verið í sjálfs­vorkunn og farið að leita að blóra­böggl­um í stað þess að leita inn á við.

    Eft­ir að hafa leitað Guðs fyr­ir 10 árum síðan fór hann að sjá sinn hlut í öllu og taka ábyrgð.

    „Þetta er ekki sam­fé­lag­inu að kenna að ég sé svona. Þetta er ekki þessu að kenna eða hinu eða ein­hverju. Þetta er bara ég og ég þarf á Guði að halda, þarf á því að halda að gef­ast upp og leita í ein­hvern æðri skiln­ing, held­ur en minn skiln­ing, af því að hann var bú­inn að koma mér í tómt vesen.“

    mbl.is