Vilji til að afgreiða bókun 35

Alþingi | 7. júní 2025

Meirihlutavilji til að ljúka afgreiðslu bókunar 35

„Fundurinn gekk bara vel, þar voru tæklaðar umræður um bókun 35 og úr því varð engin niðurstaða beint, málinu var frestað og svo boðar forseti dagskrá,“ segir Guðmundur Ari Sigurjónsson þingflokksformaður Samfylkingarinnar í samtali við mbl.is um þær umræður er áttu sér stað á Alþingi í dag er þingmenn ræddu innleiðingu á bókun 35 við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið.

Meirihlutavilji til að ljúka afgreiðslu bókunar 35

Alþingi | 7. júní 2025

Guðmundur Ari Sigurjónsson þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir öðruvísi pólitískar línur hafa …
Guðmundur Ari Sigurjónsson þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir öðruvísi pólitískar línur hafa verið dregnar á Alþingi í dag við umræðu um bókun 35. mbl.is/Eyþór

„Fund­ur­inn gekk bara vel, þar voru tæklaðar umræður um bók­un 35 og úr því varð eng­in niðurstaða beint, mál­inu var frestað og svo boðar for­seti dag­skrá,“ seg­ir Guðmund­ur Ari Sig­ur­jóns­son þing­flokks­formaður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar í sam­tali við mbl.is um þær umræður er áttu sér stað á Alþingi í dag er þing­menn ræddu inn­leiðingu á bók­un 35 við samn­ing­inn um Evr­ópska efna­hags­svæðið.

„Fund­ur­inn gekk bara vel, þar voru tæklaðar umræður um bók­un 35 og úr því varð eng­in niðurstaða beint, mál­inu var frestað og svo boðar for­seti dag­skrá,“ seg­ir Guðmund­ur Ari Sig­ur­jóns­son þing­flokks­formaður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar í sam­tali við mbl.is um þær umræður er áttu sér stað á Alþingi í dag er þing­menn ræddu inn­leiðingu á bók­un 35 við samn­ing­inn um Evr­ópska efna­hags­svæðið.

Kvað Guðmund­ur velflesta þing­flokka hafa tekið þátt í umræðunni, „ýmis áhuga­verð póli­tísk tíðindi komu þar fram, til dæm­is virðist vera samstaða Sjálf­stæðis­flokks og rík­is­stjórn­ar­flokk­ana um að styðja málið á meðan Miðflokk­ur­inn slær ákveðna varnagla“, held­ur þing­flokks­formaður­inn áfram.

Eins og mbl.is greindi frá í gær rík­ir ein­hug­ur inn­an rík­is­stjórn­ar­inn­ar um að inn­leiða bók­un 35 fyr­ir sum­ar­frí þings­ins, en hún geng­ur að meg­in­stefi út á að ef EES-samn­ing­ur­inn stang­ist á við önn­ur ís­lensk lög gildi lög­in um EES-samn­ing­inn nema Alþingi hafi tekið af öll tví­mæli við laga­setn­ingu um að svo skuli ekki verða.

Öðru­vísi póli­tísk­ar lín­ur

Til­gang­ur bók­un­ar 35 er að búa svo um hnút­ana að þjóðþing geti ekki svipt ein­stak­linga og fyr­ir­tæki þeim rétt­ind­um sem þeim eru tryggð í EES-samn­ingn­um með setn­ingu annarra laga.

Seg­ir Guðmund­ur öðru­vísi póli­tísk­ar lín­ur hafa birst við umræðuna í dag en hingað til hafi mátt sjá. „Stjórn og stjórn­ar­and­stöðuflokk­ar voru þar sam­stíga um að styðja mik­il­vægt mál,“ seg­ir hann.

Viltu spá ein­hverju um fram­vindu þessa máls og lok?

„Nei, ég þori nú ekki að spá neitt nema að umræðunni verði fram haldið og hún tæm­ist. Það er mik­ill meiri­hluta­vilji inn­an þings­ins til að klára þetta mál og mik­il­vægt fyr­ir þjóðina að við eyðum þess­ari óvissu varðandi EES-samn­ing­inn,“ seg­ir Guðmund­ur Ari Sig­ur­jóns­son þing­flokks­formaður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar um bók­un 35 og dag­langa umræðu um hana á þing­inu í dag.

mbl.is