Ekki endilega spurt um heiðarleika

Edrúland | 8. júní 2025

Ekki endilega spurt um heiðarleika

Jafningjafræðsla innan fangelsanna er algjör game changer, sérstaklega fyrir yngri stráka sem skortir góðar fyrirmyndir.

Ekki endilega spurt um heiðarleika

Edrúland | 8. júní 2025

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Jafn­ingja­fræðsla inn­an fang­els­anna er al­gjör game chan­ger, sér­stak­lega fyr­ir yngri stráka sem skort­ir góðar fyr­ir­mynd­ir.

    Jafn­ingja­fræðsla inn­an fang­els­anna er al­gjör game chan­ger, sér­stak­lega fyr­ir yngri stráka sem skort­ir góðar fyr­ir­mynd­ir.

    Strák­arn­ir sem koma inn í fang­els­in með jafn­ingja­fræðslu eru bún­ir að snúa við blaðinu og eru í dag að gera góða hluti. Þeir sýna fram á að það sé hægt að vera í heiðarleika, vera edrú, standa sig vel og öðlast allt aft­ur sem viðkom­andi er bú­inn að missa – fjöl­skyldu, tengsl við börn­in sín og maka til dæm­is.

    „Þetta eru góðar fyr­ir­mynd­ir, og það er það sem þess­um strák­um vant­ar, það eru góðar fyr­ir­mynd­ir, að sjá að þetta er hægt,“ seg­ir Daní­el Rafn Guðmunds­son, en hann ræddi við Dag­mál mbl.is um fang­els­is­kerfið og kom jafn­ingja­fræðslan meðal ann­ars til tals.

    „Ganga vel og græða pen­inga“

    Daní­el hef­ur verið edrú í 10 ár, allt frá því að hann leitaði Guðs í litlu kirkj­unni á Staðar­felli og fékk um leið að finna upp­lif­un sem breytti öllu. Í dag fer hann með trú­ar­leg­an boðskap inn í fang­els­in og gegn­ir þar einnig jafn­ingja­hlut­verki.

    Hann seg­ir al­gengt að ung­um strák­um sem leiðist út í neyslu eða af­brot skorti góðar fyr­ir­mynd­ir. Á yngri árum sé auðvelt að líta upp til þeirra sem séu að „meika það“ í þess­um heimi, þó það sé ekki á heiðarleg­an hátt.

    „Það er líka það sem sam­fé­lagið seg­ir okk­ur að gera. Það er að ganga vel og græða pen­inga og svona. Það er ekk­ert endi­lega spurt um hvort þetta sé al­veg 100% heiðarlegt.

    Þannig að fyr­ir­mynd­irn­ar eru oft brenglaðar.“

    „Það er líka það sem samfélagið segir okkur að gera. …
    „Það er líka það sem sam­fé­lagið seg­ir okk­ur að gera. Það er að ganga vel og græða pen­inga og svona. Það er ekk­ert endi­lega spurt um hvort þetta sé al­veg 100% heiðarlegt,“ seg­ir Daní­el. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son
    mbl.is