Segja talsmann almannavarna vera hryðjuverkamann

Ísrael/Palestína | 8. júní 2025

Segja talsmann almannavarna vera hryðjuverkamann

Ísraelsher sakaði talsmann almannavarna á Gasa um að vera „hryðjuverkamann“ Hamas. Hann neitar ásökuninni. 

Segja talsmann almannavarna vera hryðjuverkamann

Ísrael/Palestína | 8. júní 2025

Almannavarnardeildin hefur greint frá ástandinu á Gasa.
Almannavarnardeildin hefur greint frá ástandinu á Gasa. AFP

Ísra­els­her sakaði tals­mann al­manna­varna á Gasa um að vera „hryðju­verka­mann“ Ham­as. Hann neit­ar ásök­un­inni. 

Ísra­els­her sakaði tals­mann al­manna­varna á Gasa um að vera „hryðju­verka­mann“ Ham­as. Hann neit­ar ásök­un­inni. 

Her­inn vísaði í gögn sem fund­ust í hernaðaraðgerðum á Gasa og sagði Mahmud Bassal hafa verið „virk­an hryðju­verka­mann“ í hryðju­verka­sam­tök­un­um. 

Ísra­els­her gaf út af­rit af því sem her­inn sagði vera fé­laga­tal sam­tak­anna, án þess að skýra hvar eða hvernig skjöl­in fund­ust. Þau eru ódag­sett. 

Her­inn sakaði Bassal um að þjóna mark­miðum Ham­as með því að dreifa fölsk­um og óstaðfest­um upp­lýs­ing­um frá Gasa. 

Starfar ekki fyr­ir hernaðarsam­tök

„Þetta er röng ásök­un,“ sagði Bassal við AFP-frétta­veit­una. 

„Ég starfa ekki fyr­ir nein hernaðarsam­tök,“ sagði hann og bætti við að störf al­manna­varna­deild­ar­inn­ar væru eft­ir alþjóðalög­um. 

Deild­in hef­ur starfað á Gasa­svæðinu í ára­tugi. Hún hef­ur ann­ast flutn­inga þeirra sem hafa slasast í árás­um Ísra­els­hers á sjúkra­hús. 

mbl.is