Skútan heldur ótrauð áfram

Ísrael/Palestína | 8. júní 2025

Skútan heldur ótrauð áfram

Skúta með Gretu Thunberg og ellefu aðgerðarsinnum um borð heldur leið sinni á Gasa ótrauð áfram þrátt fyrir skipun Ísraelsstjórnar um að herinn skuli hindra leið skútunnar.

Skútan heldur ótrauð áfram

Ísrael/Palestína | 8. júní 2025

Greta Thunberg er um borð í skútunni.
Greta Thunberg er um borð í skútunni. AFP

Skúta með Gretu Thun­berg og ell­efu aðgerðar­sinn­um um borð held­ur leið sinni á Gasa ótrauð áfram þrátt fyr­ir skip­un Ísra­els­stjórn­ar um að her­inn skuli hindra leið skút­unn­ar.

Skúta með Gretu Thun­berg og ell­efu aðgerðar­sinn­um um borð held­ur leið sinni á Gasa ótrauð áfram þrátt fyr­ir skip­un Ísra­els­stjórn­ar um að her­inn skuli hindra leið skút­unn­ar.

„Við höld­um ferðinni áfram fram á síðustu mín­útu, þar til Ísra­el lok­ar á fjar­skipti og in­ter­net skút­unn­ar,“ sagði Rima Hass­an, þingmaður Evr­ópuþings­ins, við AFP-frétta­veit­una. 

Skút­an ber heitið Madleen og lagði af stað frá Sikiley í síðustu viku með hjálp­ar­gögn. 

„Við erum tólf al­menn­ir borg­ar­ar um borð. Við erum ekki vopnuð. Það eru ein­ung­is hjálp­ar­gögn um borð,“ sagði Hass­an. 

„Ég hef skipað hern­um að koma í veg fyr­ir að Madleen–skút­an nái að Gasa,“ sagði Isra­el Katz, varn­ar­málaráðherra Ísra­els, í yf­ir­lýs­ingu fyrr í dag.

Farþegar skút­unn­ar svöruðu með yf­ir­lýs­ingu og sögðust bú­ast við árás hers­ins á hverri stundu. Þá kölluðu þau eft­ir því að rík­is­stjórn­ir heimalanda þeirra vernduðu þau. 

Rík­is­borg­ar­ar Þýska­lands, Frakk­lands, Bras­il­íu, Tyrk­lands, Svíþjóðar og Hol­lands eru um borð. 

„Við erum ekki hrædd við þá,“ sagði þýski aðgerðarsinn­inn Ya­sem­in Acar. 

„Skila­boðin sem þau hafa sent okk­ur, um að við meg­um ekki koma nærri, stöðva okk­ur ekki,“ sagði hún. 

mbl.is