Ísraelska hernum hefur verið skipað að hindra að skúta með hjálpargögn fyrir Palestínumenn nái til Gasa.

Greint var frá því í gærkvöldi að aðgerðasinninn Greta Thunberg, ásamt ellefu öðrum aðgerðasinnum, væri að nálgast hafsvæði Gasa á skútunni Madleen. Skútan lagði af stað frá Sikiley í síðustu viku með hjálpargögn til Palestínumanna. Talið var að hópurinn myndi komast í land á Gasa á mánudagsmorgun.
„Ég hef skipað hernum að koma í veg fyrir að Madleen–skútan nái að Gasa,“ sagði Israel Katz, varnarmálaráðherra Ísraels, í yfirlýsingu.
„Til Gretu, gyðingahatara, og félaga hennar, talsmanna Hamas–áróðurs, segi ég skýrt: Snúið við því þið munuð ekki ná að Gasa.“
Hægt er að fylgjast með staðsetningu Madleen í rauntíma hér.