„Þetta er algjörlega blaut tuska í andlitið“

Alþingi | 8. júní 2025

„Þetta er algjörlega blaut tuska í andlitið“

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, starfandi bæjarstjóri í Reykjanesbæ, segir sorglegt að núverandi ríkisstjórn falli frá ákvörðun fyrrum mennta- og barnamálaráðherra um löngu tímabæra uppbyggingu á Fjölbrautarskóla Suðurnesja. Reykjanesbær, Suðurnesjabær og sveitarfélagið Vogar hafi verið búin að staðfesta sinn 40% hlut í kostnaði uppbyggingarinnar.

„Þetta er algjörlega blaut tuska í andlitið“

Alþingi | 8. júní 2025

„Þetta er algjörlega blaut tuska í andlitið og við verðum …
„Þetta er algjörlega blaut tuska í andlitið og við verðum að gera betur,“ segir Halldóra í samtali við mbl.is. Samsett mynd/Karítas/Eyþór

Hall­dóra Fríða Þor­valds­dótt­ir, starf­andi bæj­ar­stjóri í Reykja­nes­bæ, seg­ir sorg­legt að nú­ver­andi rík­is­stjórn falli frá ákvörðun fyrr­um mennta- og barna­málaráðherra um löngu tíma­bæra upp­bygg­ingu á Fjöl­braut­ar­skóla Suður­nesja. Reykja­nes­bær, Suður­nesja­bær og sveit­ar­fé­lagið Vog­ar hafi verið búin að staðfesta sinn 40% hlut í kostnaði upp­bygg­ing­ar­inn­ar.

Hall­dóra Fríða Þor­valds­dótt­ir, starf­andi bæj­ar­stjóri í Reykja­nes­bæ, seg­ir sorg­legt að nú­ver­andi rík­is­stjórn falli frá ákvörðun fyrr­um mennta- og barna­málaráðherra um löngu tíma­bæra upp­bygg­ingu á Fjöl­braut­ar­skóla Suður­nesja. Reykja­nes­bær, Suður­nesja­bær og sveit­ar­fé­lagið Vog­ar hafi verið búin að staðfesta sinn 40% hlut í kostnaði upp­bygg­ing­ar­inn­ar.

Í um­fjöll­un mbl.is fyr­ir helgi sagði Stefán Vagn Stef­áns­son, þingmaður Fram­sókn­ar, í sam­tali við mbl.is að rík­is­stjórn­in hef­ði í þriðju fjár­auka­lög­um sín­um ákveðið að hætta við fjár­mögn­un sem búið var að tryggja á þessu ári til að ráðast í stækk­un fjög­urra verk­náms­skóla.

„Þetta er al­gjör­lega blaut tuska í and­litið og við verðum að gera bet­ur,“ seg­ir Hall­dóra í sam­tali við mbl.is.

Minnsta sem hægt er að gera að láta vita

Á fyrri hluta síðasta árs voru und­ir­ritaðir samn­ing­ar við fjölda sveit­ar­fé­laga til að stækka Mennta­skól­ann á Ísaf­irði, Fjöl­brauta­skóla Norður­lands vestra, Verk­mennta­skól­ann á Ak­ur­eyr­i og Fjöl­brauta­skóla Suður­nesja til að mæta mik­illi eft­ir­spurn í verk- og starfs­nám.

Eins og áður seg­ir hef­ur rík­is­stjórn­in hætt við þessa fjár­mögn­un og seg­ir Hall­dóra eng­an hafa verið lát­inn vita og sjálf hefði hún kom­ist að ákvörðun­inni við að lesa um­fjöll­un í fjöl­miðlum.

Spurð álits á um­mæl­um Heim­is Más Pét­urs­son­ar, fram­kvæmda­stjóra og upp­lýs­inga­full­trúa þing­flokks Flokks fólks­ins, sem benti á það að fjár­magn­inu hefði verið „hliðrað til næsta árs“ og að „ekki standi til að draga úr því að fram­kvæmd­ir færu af stað,“ seg­ir Hall­dóra að það hefði verið ágætt að láta, í það minnsta, skólaráðið vita af ákvörðun­inni.

„Það er veru­lega und­ar­legt að það sé verið að taka svona ofboðslega stór­ar ákv­arðanir og láta eng­an vita,“ seg­ir hún.

„Ef svona ákv­arðanir eru tekn­ar á þess­um stöðum þá er full­kom­lega eðli­legt að láta sveit­ar­stjórn­ir og stjórn­end­ur skól­anna vita af þeim ákvörðunum. Við vor­um hér Reykja­nes­bær, Suður­nesja­bær og Vog­ar, búin að samþykkja að greiða 40% af upp­bygg­ing­unni.

Þannig að Reykja­nes­bær hefði greitt um 80% af þess­ari upp­hæð sem eru um 400 millj­ón­ir, og það minnsta sem hægt er að gera er að láta okk­ur vita. Þetta hef­ur líka áhrif á okk­ar áætlan­ir.“

Þarfagrein­ing­in unn­in árið 2019

Hall­dóra minn­ir á að þarfagrein­ing hefði verið unn­in fyr­ir Fjöl­brauta­skól­ann á Suður­nesj­um árið 2019 og henni skilað árið 2020. Þar hafi komið fram að þörf fyr­ir hús­næði fyr­ir verk­námsaðstöðuna væri um 2.000 fer­metr­ar. Á þeim tíma hefðu deild­irn­ar verið á víð og dreif – eins og þær eru enn þá í dag – og verið í alls 930 fer­metr­um, „þannig að það var strax ljóst að það væri mik­il þörf á því að gera bet­ur“.

„Þá kom einnig fram að fer­metra­fjöldi ætti að vera 15 fer­metr­ar á nem­anda en væri tölu­vert und­ir því. Þarfagrein­ing­in sýndi það sem við vit­um,“ seg­ir Hall­dóra.

Síðast var byggt við Fjöl­braut­ar­skól­ann á Suður­nesj­um árið 2004 og var íbúa­fjöldi á Suður­nesj­um þá 17.000 manns. Núna er íbúa­fjöld­inn, bara í Reykja­nes­bæ ein­um, 24.500 og á Suður­nesj­um um 32.000 manns. „Þannig að íbúa­fjöldi á svæðinu hef­ur tvö­fald­ast en skól­inn hef­ur ekk­ert stækkað, ekki um fer­metra“.

Seg­ir hún bæ­inn hafa bent á þetta lengi og því hafi íbú­ar verið ofboðslega bjart­sýn­ir þegar fyrr­um mennta- og barna­málaráðherra var til­bú­inn að leggja af stað í þessa veg­ferð, að byggja við skól­ann.

„Það var skrifað und­ir það í apríl í fyrra, eins og víða á land­inu, að stækka skól­ann um allt að 1.900 fer­metra, sem þó næg­ir ekki fyr­ir þessa þarfagrein­ingu sem var gerð fyr­ir fimm árum síðan.“

„Þetta er komið í al­gjört óefni“

„Við geng­um svo langt að funda með emb­ætt­is­mönn­um í ráðuneyt­inu og leggja til að steypa upp aðra hæð á húsið sem stóð til að byggja, til þess að hafa hana þá alla­vega til­búna,“ seg­ir Hall­dóra. Það sé ódýr­ara að steypa þriðju hæðina, þó hún verði ekki kláruð, og geta inn­réttað hana eft­ir því sem fjár­magn fæst, „af því að við vit­um að það er svo mik­il þörf“.

Á skóla­lóðinni eru svo­kallaðar laus­ar stof­ur, nokk­urs kon­ar gáma­ein­ing­ar, sem hafa verið nýtt­ar sem fær­an­leg­ar ein­ing­ar.

Seg­ir Hall­dóra málið vera komið í svo mikið óefni að húsa­smíðabraut­in – sem smíðar alltaf sum­ar­bú­stað og sel­ur upp í efn­is­kostnað – hefði ekki getað selt sum­ar­bú­staðinn sem var byggður síðast af því að skól­inn hefði þurft að nýta hann sem kennslu­stofu.

„Þannig að þetta er komið í al­gjört óefni.“

Tek­ur hún fram að skól­inn sé mjög vel rek­inn miðað við það fjár­magn sem hann fái, en hann sé verr fjár­magnaður en aðrir sam­bæri­leg­ir skól­ar. Fjár­magnið sem Fjöl­braut­ar­skóli Suður­nesja fái fyr­ir hvern nem­anda sé 700.000 krón­um lægra en Fjöl­braut­ar­skóli Suður­lands.

„Við höf­um ekki fengið neina eðli­lega skýr­ingu á þeim mun. Það er eitt­hvað sem væri veru­lega áhuga­vert að reyna að fá ein­hverj­ar betri skýr­ing­ar á.“

mbl.is