Metfjölda rússneskra dróna skotið á loft

Úkraína | 9. júní 2025

Metfjöldi rússneskra dróna skotið

Rússar sendu metfjölda dróna til Úkraínu í nótt, alls 479 talsins, að sögn úkraínska flughersins. 

Metfjöldi rússneskra dróna skotið

Úkraína | 9. júní 2025

Mynd úr safni af úkraínskum hermönnum undirbúa drónaárás.
Mynd úr safni af úkraínskum hermönnum undirbúa drónaárás. AFP

Rúss­ar sendu met­fjölda dróna til Úkraínu í nótt, alls 479 tals­ins, að sögn úkraínska flug­hers­ins. 

Rúss­ar sendu met­fjölda dróna til Úkraínu í nótt, alls 479 tals­ins, að sögn úkraínska flug­hers­ins. 

Árás­in olli eyðilegg­ingu á nokkr­um svæðum í Úkraínu. Enn sem komið er er ekki vitað um mann­fall.

„Loft­árás­ir óvin­ar­ins voru skráðar á tíu stöðum,“ sagði í til­kynn­ingu flug­hers­ins.

Oleks­andr Tretí­ak, borg­ar­stjóri Rív­ne í vest­ur­hluta Úkraínu, sagði árás­ina þá „stærstu“ í héraðinu frá því að stríðið hófst.

Árás­ir Rússa hafa stig­magn­ast á síðustu vik­um. Stjórn­völd í Kænug­arði segja það sýna fram á að rúss­nesk stjórn­völd hafi eng­an ásetn­ing um vopna­hlé og taki friðarviðræður ekki al­var­lega.

Úkraínski loft­her­inn greindi frá því að 460 drón­ar hefðu verið skotn­ir niður, auk 19 af 20 eld­flaug­um næt­ur­inn­ar.

Úkraínu­menn gerðu árás á raf­tækja­verk­smiðju í Rússlandi í nótt sem fram­leiðir íhluti í dróna. Rúss­ar greindu frá því að stöðva hefði þurft starf­semi verk­smiðjunn­ar tíma­bundið eft­ir árás­ina.

mbl.is