Einn skjálfti mældist 3 að stærð á Reykjaneshryggnum í hádeginu í dag.
Einn skjálfti mældist 3 að stærð á Reykjaneshryggnum í hádeginu í dag.
Einn skjálfti mældist 3 að stærð á Reykjaneshryggnum í hádeginu í dag.
Að sögn Minneyjar Sigurðardóttur, náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands, er þetta hefðbundin virkni á svæðinu.
„Við fáum mjög oft skjálfta, þrista og stærri þarna úti á Reykjaneshrygg. Það var bara síðast í maí sem það kom stór hrina og þær koma reglulega en þetta voru bara stakir skjálftar, engin hrina,“ segir Minney í samtali við mbl.is.
Þá segir hún vera „mjög rólegt í jörðu“ miðað við hvað það er gott veður, „þá yfirleitt sjáum við fleiri skjálfta“.