Líklegt að nefndin leggi til breytingar

Alþingi | 10. júní 2025

Líklegt að nefndin leggi til breytingar

Líklegt er að meirihluti atvinnuveganefndar leggi til breytingar á veiðigjaldafrumvarpinu að sögn Njáls Trausta Friðbertssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins og nefndarmanns í nefndinni. 

Líklegt að nefndin leggi til breytingar

Alþingi | 10. júní 2025

Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lík­legt er að meiri­hluti at­vinnu­vega­nefnd­ar leggi til breyt­ing­ar á veiðigjalda­frum­varp­inu að sögn Njáls Trausta Friðberts­son­ar, þing­manns Sjálf­stæðis­flokks­ins og nefnd­ar­manns í nefnd­inni. 

Lík­legt er að meiri­hluti at­vinnu­vega­nefnd­ar leggi til breyt­ing­ar á veiðigjalda­frum­varp­inu að sögn Njáls Trausta Friðberts­son­ar, þing­manns Sjálf­stæðis­flokks­ins og nefnd­ar­manns í nefnd­inni. 

At­vinnu­vega­nefnd fundaði í morg­un og umræða um veiðigjald var meðal þess sem var á dag­skrá fund­ar­ins.

Mörg mál liggja fyr­ir hjá nefnd­inni þessa stund­ina en starfs­áætl­un þings­ins var felld úr gildi í vik­unni og því hef­ur nefnd­in lík­lega lengri tíma en bú­ist var við til þess að vinna mál­in. 

Eiríkur Björn Björgvinsson, 1. varaformaður atvinnunefndar, telur styttast í álit …
Ei­rík­ur Björn Björg­vins­son, 1. vara­formaður at­vinnu­nefnd­ar, tel­ur stytt­ast í álit nefnd­ar­inn­ar. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Stytt­ist í álit nefnd­ar­inn­ar

Jón Gunn­ars­son, þingmaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, sem er 2. vara­formaður nefnd­ar­inn­ar, sagði í mbl.is í lok maí­mánaðar að hann teldi að þeir gest­ir sem kæmu fyr­ir nefnd­ina töluðu fyr­ir dauf­um eyr­um meiri­hluta nefnd­ar­manna.

Njáll er ekki á sama máli og flokks­bróðir hans en hann tel­ur að meiri­hluti nefnd­ar­inn­ar komi til með að taka til­lit til þeirra at­huga­semda sem borist hafa og leggi því fram breyt­ing­ar­til­lögu.

„Ég held það, miðað við þá um­sagnaraðila sem komið hafa fyr­ir nefnd­ina tel ég að það sé ekki annað hægt en að taka til­lit til þeirra sjón­ar­miða sem hafa komið þar fram. Þegar menn sjá hvaða áhrif þetta kem­ur til með að hafa á rekst­ur fyr­ir­tækj­anna er ekki annað hægt en að sjá þetta í eðli­legra ljósi,“ seg­ir Njáll í sam­tali við mbl.is aðspurður hvort hann telji meiri­hlut­ann í nefnd­inni koma til með að skila inn til­lögu að breyt­ing­um á frum­varp­inu.

Ei­rík­ur Björn Björg­vins­son, 1. vara­formaður nefnd­ar­inn­ar, seg­ir í sam­tali við mbl.is að umræða um veiðigjöld­in sé kom­in langt á leið inn­an nefnd­ar­inn­ar og að það stytt­ist í það að at­vinnu­vega­nefnd skili inn áliti sínu. Hann tel­ur þó ekki tíma­bært að segja til um hvers eðlis álitið verður.

mbl.is