Segir geggjað að búa í Kaupmannahöfn

Borgarferðir | 10. júní 2025

Segir geggjað að búa í Kaupmannahöfn

Ingibjörg Hekla Hafstein, námsmaður í Danmörku, segir það geggjað að búa í Kaupmannahöfn.

Segir geggjað að búa í Kaupmannahöfn

Borgarferðir | 10. júní 2025

Segir Kaupmannahöfn lifandi og skemmtilega borg.
Segir Kaupmannahöfn lifandi og skemmtilega borg. Ljósmynd/Aðsend

Ingi­björg Hekla Haf­stein, námsmaður í Dan­mörku, seg­ir það geggjað að búa í Kaup­manna­höfn.

Ingi­björg Hekla Haf­stein, námsmaður í Dan­mörku, seg­ir það geggjað að búa í Kaup­manna­höfn.

Í fyrra kláraði Ingi­björg stúd­ents­próf frá Verzl­un­ar­skóla Íslands. Hún flutti beint til Kaup­manna­hafn­ar í nám og var að ljúka við fyrsta árið í orku­verk­fræði við Tækni­há­skól­ann í Dan­mörku (DTU).

Ingibjörg mælir með því að flytja út í nám.
Ingi­björg mæl­ir með því að flytja út í nám. Ljós­mynd/​Aðsend

Hvernig er að vera námsmaður í Kaup­manna­höfn?

„Námið er mjög krefj­andi á köfl­um, en þegar ég á frí­tíma þá er geggjað að búa í Kaup­manna­höfn og geta gert allt það sem borg­in hef­ur upp á að bjóða. Kaup­manna­höfn er mjög lif­andi og skemmti­leg borg svo það er alltaf eitt­hvað um að vera.“

Ekki svo stórt stökk að flytja út

„Að flytja út var ekki svo stórt stökk, þar sem flugið heim er stutt og menn­ing­in mjög svipuð hér úti og heima. Einnig eru svo marg­ir Íslend­ing­ar sem búa hér úti og marg­ir vin­ir eru til í að taka helg­ar­ferð til Kö­ben og koma í heim­sókn.“

Hvað kom þér mest á óvart þegar þú flutt­ir út?

„Ég hafði nokkr­um sinn­um farið til Kaup­manna­hafn­ar áður en ég flutti þangað svo það var ekki mikið sem kom mér á óvart. Það eina sem mér dett­ur í hug er hvað það er lítið úr­val af orku­drykkj­um hér miðað við heima á Íslandi.“

Ingi­björg er mik­il hlaupa­kona og þykir skemmti­legra að fara út að hlaupa held­ur en að fara í rækt­ina. Þegar hún var ný­flutt út og ekki kunn­ug staðhátt­um þurfti hún þó að passa sig á því að vill­ast ekki.

Henni finnst gaman að fara út að hlaupa í góðu …
Henni finnst gam­an að fara út að hlaupa í góðu veðri. Ljós­mynd/​Aðsend

„Ég hleyp yf­ir­leitt bara með hlaupa­úr og skil sím­ann eft­ir heima. Þegar ég var ný­flutt hljóp ég alltaf bara sama hring­inn í kring­um Søer­ne, sem er eins kon­ar tjörn, svo ég myndi ekki vill­ast. Hring­ur­inn í kring­um Søer­ne er mjög vin­sæl og fal­leg hlaupaleið og ég hleyp ennþá oft þar í kring. Í dag finnst mér einnig mjög gam­an að hlaupa í gegn­um bæði Frederiks­berg Have og Fæl­ledp­ar­ken.

Fyr­ir­tæki halda hlaupa­hitt­inga

„Hér er mikið af fyr­ir­tækj­um sem halda viku­lega svo­kölluð „social runs“ þar sem fólk kem­ur sam­an, hleyp­ur stutt­an hring og oft er boðið upp á frí­an morg­un­mat að hlaup­inu loknu, sem er hvatn­ing til að mæta og taka þátt. Ég hef mætt í nokkra af þess­um hlaupa­klúbb­um með vin­kon­um mín­um og það hef­ur alltaf verið mjög gam­an.“

Ingibjörg hleypur oft í kringum Søerne.
Ingi­björg hleyp­ur oft í kring­um Søer­ne. Ljós­mynd/​Aðsend

Ertu að vinna með skól­an­um?

„Já, en mjög lítið samt þar sem námið er krefj­andi og tíma­frekt. Ég er að vinna í fata­búð sem heit­ir Palette 26 og sel­ur vel vald­ar „second hand“ flík­ur. Það er mjög gam­an að vinna í svona fal­legu um­hverfi, fá inn­blást­ur og vera með stelp­um á mín­um aldri sem hafa einnig áhuga á tísku og hönn­un.“

Hún vinnur í fatabúð með skólanum.
Hún vinn­ur í fata­búð með skól­an­um. Ljós­mynd/​Aðsend

Áttu ein­hverja upp­á­halds veit­ingastaði?

„Það fer eig­in­lega bara eft­ir því í hvernig stuði ég er. Dan­ir eru mjög mikið fyr­ir ít­alska veit­ingastaði og ég get mælt með Resto Bar, Bar Amore og Locale 21. Baaz­ar, sem er mið-aust­ur­lensk­ur og Llama, sem er suð-am­er­ísk­ur eru líka mjög góðir. Á Cafe Bopa er sjúk­lega næs úti­svæði og ég elska að sitja þar úti í sól­inni ef það er gott veður. Ef mig lang­ar í góða pizzu þá fer ég oft­ast á Corsa Pizza.“

Fær góðar pizzur á pizzastaðnum Costa Pizza.
Fær góðar pizz­ur á pizz­astaðnum Costa Pizza. Ljós­mynd/​Aðsend

Leyf­ir sér að lifa eins og hún sé í fríi í út­lönd­um

Hvernig hljóm­ar hinn full­komni dag­ur fyr­ir þér úti í Kaup­manna­höfn?

„Upp­á­halds dag­arn­ir mín­ir hér úti eru þegar ég legg bæk­urn­ar á hill­una og leyfi mér að lifa eins og ég sé bara í fríi í út­lönd­um. Á hinum full­komna degi væri bongó-blíða og dag­ur­inn myndi byrja á ein­hvers kon­ar hreyf­ingu. Mér finnst skemmti­legra að fara út að hlaupa en að fara í rækt­ina, þar sem veðrið er orðið svo gott. Eft­ir það myndi ég fara í sólbað með vin­kon­um mín­um á bryggj­unni í Nor­d­havn, fá mér síðan góðan há­deg­is­mat og sitja úti í sól­inni. Svo væri bara al­veg full­komið ef ég væri með botn­laust veski og gæti farið að sjoppa og keypt mér allt það sem mig lang­ar í. Dag­ur­inn myndi enda á því að gera mig sæta, fara með vin­kon­um mín­um í „dinner“ á næs veit­ingastað og djamma smá í bæn­um.“

Fór beint í Tækniháskóla Danmerkur eftir Verzló.
Fór beint í Tækni­há­skóla Dan­merk­ur eft­ir Verzló.

Mæl­irðu með því fyr­ir Íslend­inga að fara í nám til Kaup­manna­hafn­ar?

„Já, al­gjör­lega! Námið er frítt og þótt að Kö­ben sé dýr borg þá er allt alla­vega 10% ódýr­ara hér en á Íslandi, að mínu mati. Dan­mörk er þekkt fyr­ir að vera með góð kjör fyr­ir náms­menn og við Íslend­ing­ar get­um fengið náms­styrk frá rík­inu ef við vinn­um ákveðið marga tíma á viku. Ég næ vissu­lega ekki að vinna upp þessa tíma, en samt gott að vita fyr­ir þá sem eru að íhuga að flytja út í nám.“

Mæl­ir með því að flytja út

„Ég myndi alltaf mæla með því að flytja út í nám, hvort sem það er til Kaup­manna­hafn­ar eða eitt­hvert allt annað. Reynslu­bank­inn verður ekki svo veg­leg­ur ef maður býr bara á Íslandi allt sitt líf og það er svo mik­il­vægt að breyta um um­hverfi, læra að standa á eig­in fót­um og kynn­ast nýju fólki af mis­mun­andi upp­runa. “

Mælir með mörgum góðum veitingastöðum.
Mæl­ir með mörg­um góðum veit­inga­stöðum.
mbl.is