Guðrún: „Hingað og ekki lengra“

Alþingi | 11. júní 2025

Guðrún: „Hingað og ekki lengra“

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir ríkisfjármálin glíma við útgjaldavanda fremur en tekjuvanda.

Guðrún: „Hingað og ekki lengra“

Alþingi | 11. júní 2025

Guðrún Hafsteinsdóttir var harðorð í ræðu sinni í dag í …
Guðrún Hafsteinsdóttir var harðorð í ræðu sinni í dag í eldhúsdagsumræðum. Morgunblaðið/Karítas

Guðrún Haf­steins­dótt­ir, formaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, seg­ir rík­is­fjár­mál­in glíma við út­gjalda­vanda frem­ur en tekju­vanda.

Guðrún Haf­steins­dótt­ir, formaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, seg­ir rík­is­fjár­mál­in glíma við út­gjalda­vanda frem­ur en tekju­vanda.

Í ræðu sinni í fyrri um­ferð eld­hús­dagsum­ræðna á Alþingi fyrr í kvöld gagn­rýndi Guðrún rík­is­stjórn­ina sem hún tel­ur ekki hafa sýnt fram á raun­hæf­ar aðgerðir varðandi hagræðingu í rík­is­rekstri, þvert á móti tel­ur Guðrún að rík­is­stjórn­in boði út­gjalda­aukn­ingu.

„Ísland er þegar með eitt um­fangs­mesta op­in­bera kerfi í heim­in­um. Nú þarf raun­veru­lega hagræðingu og for­gangs­röðun. Það er ekki val, held­ur nauðsyn ef við ætl­um að standa vörð um traust op­in­berra fjár­mála og jafn­ræði á milli kyn­slóða,“ seg­ir Guðrún í ræðustól Alþing­is. 

Gagn­rýn­ir frum­varp Ingu

Guðrún bein­ir spjót­um sín­um í upp­hafi ræðu sinn­ar að frum­varpi Ingu Sæ­land sem kveður á um að binda greiðslur bóta úr al­manna­trygg­inga­kerf­inu við launa­vísi­tölu. Frum­varpið hef­ur verið gagn­rýnt harðlega, meðal ann­ars í minn­is­blaði frá fjár­mála- og efna­hags­ráðuneyt­inu. 

„Rík­is­stjórn­in tal­ar um aðhald, en ger­ir annað. Hún lof­ar að draga úr út­gjöld­um en ætl­ar að binda um fimmt­ung rík­is­út­gjalda við launa­vísi­tölu. Þannig verða tug­ir millj­arða króna út­gjöld sjálf­virk, án nokk­urr­ar aðkomu Alþing­is. Þetta er ekki ábyrgt. Þetta er af­salað vald, með lokuðum aug­um, frá þjóðkjörn­um full­trú­um til ófyr­ir­sjá­an­legr­ar launaþró­un­ar.“

Einnig gagn­rýn­ir Guðrún rík­is­stjórn­ina þegar kem­ur að aðgerðum henn­ar til þess að ná tök­um á rík­is­fjár­mál­um sem er eitt af skrá­sett­um mark­miðum rík­is­stjórn­ar­inn­ar. 

„Rík­is­stjórn­in hef­ur í orði kveðnu sett sér það mark­mið að ná tök­um á rík­is­fjár­mál­um, stöðva halla­rekst­ur og skapa rými fyr­ir vaxta­lækk­an­ir, en verk­in tala öðru máli. Þrátt fyr­ir há­stemmd orð hef­ur rík­is­stjórn­in í raun slakað á aðhaldi og það ein­mitt þegar þörf­in er hvað brýn­ust.“

Ríkið eigi ekki að stjórna fólki

Guðrún sneri sér svo að grunn­stefi Sjálf­stæðis­flokks­ins og sagði ein­stak­linga, fjöl­skyld­ur og fyr­ir­tæki skapa verðmæti í sam­fé­lag­inu – ekki rík­is­valdið. 

„Þess vegna segj­um við í Sjálf­stæðis­flokkn­um: Hingað og ekki lengra. Það er ekki hlut­verk rík­is­ins að vita alltaf best eða stýra hverju skrefi ein­stak­ling­anna. Hlut­verk þess er að skapa trausta um­gjörð, styðja við verðmæta­sköp­un og draga sig í hlé þegar ein­stak­ling­ur­inn stend­ur styrk­um fót­um. Við verðum líka að horf­ast í augu við þá ein­földu staðreynd að eng­in þjóð hef­ur orðið rík­ari með því að skatt­leggja fólk um­fram getu þess.“

mbl.is