Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins, sagði ríkisstjórnina hafa „hrúgað“ hátt í hundrað lagafrumvörpum á þeim stutta tíma sem hún hefur verið við völd. Þrátt fyrir það hafi hagræðingarsjónarmið stjórnarinnar ekki ratað í frumvörpin, þrátt fyrir áhuga ríkisstjórnarinnar á þeim málum í upphafi kjörtímabilsins.

Þetta kom fram á eldhúsdagsumræðum á Alþingi í kvöld.
Sagði hún ríkisstjórnina hafa sett á sig merkimiða í upphafi kjörtímabilsins þar sem formenn stjórnarflokkanna kynntu sig sem valkyrjur og ríkisstjórnina sem verkstjórn.
„Verkstjórnar“ nafngiftin var skírð þannig að ríkisstjórnin ætli að láta til sín taka á fyrstu mánuðum, málin eigi að ganga á undan henni svo um munar. En um leið var merkimiðum óbeint dreift á alla aðra stjórnmálamenn sem hljóta til aðgreiningar að teljast verklausir í augum ríkisstjórnarinnar.
Tvennt er athugavert og jafnvel aðfinnsluvert við þessa skilgreiningu ríkisstjórnarinnar og örlitla sjálfsupphafningu, annars vegar hið augljósa, að það er hlutverk stjórnarandstöðu að veita ríkisstjórn aðhald og það hefði verið full vinna á þessu kjörtímabili,“ sagði Sigríður.
Ræddi hún einnig „ofuráherslu“ ríkisstjórnarinnar um að samþykkja öll þau mál sem hún lagði fram á vorþingi.
Málin virtust öll þjóna þeim tilgangi að binda ríkisstjórnina saman, sem væri það sem hún þyrfti, en lítið hafi gengið í þeim efnum það sem af er kjörtímabili.
Fór Sigríður yfir þau mál sem hafa skekið ríkisstjórnina, t.a.m. afsögn Ásthildar Lóu Þórsdóttur, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra.
Sigríður fór einnig yfir umfangsmikil mál sem ríkisstjórnin hefur lagt fram, t.a.m. frumvarp Loga Einarssonar, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, um að breyta styrkjum til einkarekinna fjölmiðla.
„Skyldi það vera hagræðing? Nei, aldeilis ekki. Því frumvarpið er ein allsherjar hefndarför gagnvart Morgunblaðinu sem hefur leyft sér að fjalla með gagnrýnum hætti um mál ríkisstjórnarflokkanna,“ sagði Sigríður.
Sigríður sagði að með frumvarpinu væri verið að leggja til að draga úr styrkveitingu til tveggja stærstu fjölmiðla landsins, Morgunblaðsins og fjölmiðla Sýnar, til þess að koma styrkjunum yfir á aðra einkarekna fjölmiðla. Benti hún á að enginn reki væri gerður að því að vinda ofan af útgjöldum Ríkisútvarpsins sem þiggur 7-8 milljarða á ári í ríkisstyrki.
„Það er vegna þess að ríkisútgjöld í dag eru skattahækkun á morgun. Þessi ríkisstjórn er alveg heiðarleg með það. Hún ætlar að hækka skatta, fyrst á fyrirtækin og svo á fólkið í landinu.“