Sendir út á götu án síma og vegabréfs

Fangelsismál | 11. júní 2025

Sendir út á götu án síma og vegabréfs

Afstaða, félag fanga á Íslandi, hefur síðastliðin ár ítrekað þurft að koma erlendum ríkisborgurum, sem sleppt hafa verið úr fangelsum án þess að vera leiðbeint um næstu skref, til hjálpar.

Sendir út á götu án síma og vegabréfs

Fangelsismál | 11. júní 2025

Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu félags fanga á Íslandi
Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu félags fanga á Íslandi Ljósmynd/Aðsend

Afstaða, fé­lag fanga á Íslandi, hef­ur síðastliðin ár ít­rekað þurft að koma er­lend­um rík­is­borg­ur­um, sem sleppt hafa verið úr fang­els­um án þess að vera leiðbeint um næstu skref, til hjálp­ar.

Afstaða, fé­lag fanga á Íslandi, hef­ur síðastliðin ár ít­rekað þurft að koma er­lend­um rík­is­borg­ur­um, sem sleppt hafa verið úr fang­els­um án þess að vera leiðbeint um næstu skref, til hjálp­ar.

Á sein­ustu fjór­um dög­um hef­ur fé­lagið meðal ann­ars ekið þrem­ur ein­stak­ling­um, sem lokið hafa afplán­un, upp á flug­völl.

Úrræðin séu til nú þegar

Guðmund­ur Ingi Þórodds­son, formaður fé­lags­ins, seg­ir stöðuna skýr­ast af því að er­lend­um föng­um, sem oft eru kon­ur eða ung­menni, sé ekki bent á þau úrræði sem eru til staðar og þeir geta leitað til. 

„Þessi úrræði eru til en það er ekki út­skýrt fyr­ir þeim hvernig eigi að sækja þessi úrræði og hver eigi að gera það,“ seg­ir Guðmund­ur í sam­tali við mbl.is en fé­lagið hef­ur ít­rekað hlaupið und­ir bagga fyr­ir þessa aðila og í mörg­um til­vik­um lagt út fyr­ir kostnað vegna flugs, gist­ing­ar og ferðakostnaðar.

Lengi bent á meint lög­brot

Lög­regl­an á Suður­nesj­um hef­ur að sögn Guðmund­ar haft það fyr­ir reglu að geyma síma og vega­bréf, sem Guðmund­ur seg­ir stang­ast á við lög. 

„Þeir vita ekk­ert hvar þeir eiga að sækja síma sinn og vega­bréf en lög­regl­an geym­ir þessa hluti jafn­vel á sitt­hvor­um staðnum. Það þarf að fara finna þetta, en sam­kvæmt lög­um á lög­regl­an ekki að vera með þetta eft­ir að rann­sókn máls lýk­ur. Það er ekki lög­regl­unn­ar að geyma þetta, þeir eiga ekki þessa hluti.“

Guðmund­ur seg­ir að lög­reglu­embætt­inu á Suður­nesj­um hafi verið bent á það í mörg ár að fyr­ir­komu­lagið stang­ist á við lög en að ekk­ert hafi breyst. 

Eng­inn einn ber ábyrgð á stöðunni

Guðmund­ur seg­ir marga mis­mun­andi aðila bera ábyrgð á stöðunni og að ekki sé hægt að kenna neinu einu um. 

„Lög­regla er með menn í far­banni og geym­ir þá í fanga­geymsl­um. Svo er ákveðið að aflétta far­bann­inu og þá tel­ur lög­regl­an sínu hlut­verki lokið og ger­ir ekk­ert meira. Fang­els­is­yf­ir­völd eiga einnig að gera bet­ur, Reykja­vík­ur­borg sinn­ir út­lend­ing­um í sér­stök­um aðstæðum en það veit eng­inn af því, það þarf að kynna þessa hluti bet­ur,“ seg­ir Guðmund­ur að lok­um. 

mbl.is