Fasteignakaup Sigmars Vilhjálmssonar athafnamanns hafa verið fyrirferðamikil síðustu ár. Hægt er að segja að þetta hafi allt hafist í kórónuveirunni en eftir að hafa lent í sóttkví í blokkaríbúð varð hann að flytja. Þá hnaut hann um fallegt raðhús í Mosfellsbæ sem hann gerði upp eftir kúnstarinnar reglum.

Fyrir tveimur árum setti Sigmar húsið á sölu til þess að geta gert hreint fyrir sínum dyrum en skuldir höfðu safnast upp á meðan kórónuveiran geisaði.
„Staða fyrirtækisins hefur verið erfið i Covid og eftir. Frábærir birgjar hafa staðið með okkur i þeirri baráttu enda fengum við enga ríkisstyrki, ekki krónu. Síðan kemur að því að greiða þær skuldir til baka. Sumir velja það að skipta um kennitölur. Aðrir velja það að standa við sínar skuldbindingar. Sala mín á húsinu er hluti af því að standa við mínar skuldbindingar. Ég seldi húsið. Hluti söluandvirðisins notaði ég til að gera upp skuldir við kröfuhafa og létta með því greiðslubyrði félagsins á covid-skuldum félagsins,“ sagði Sigmar í samtali við Smartland fyrir tveimur árum.
Þá hafði Alma leigufélag keypt húsið af Sigmari en gert við hann leigusamning um að hann mætti búa í húsinu í tvö ár. Planið hjá Sigmari var að kaupa húsið aftur að þeim tíma liðnum. Það varð ekki raunin og er hann fluttur úr húsinu.
Í vor greindi Smartland frá því að Sigmar væri í tiltekt og auglýsti ný ljós til sölu á Facebook.
Smartland óskar Sigmari góðs gengis!