Varnartengd útgjöld aukin hægt

Varnarmál Íslands | 11. júní 2025

Varnartengd útgjöld aukin hægt

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að varnartengd útgjöld á Íslandi verði ekki aukin í einu vetfangi, en miðað sé við að þau nái um 1,5% af landsframleiðslu árið 2032, mögulega 2035.

Varnartengd útgjöld aukin hægt

Varnarmál Íslands | 11. júní 2025

„Það er heill hellingur af útgjöldum sem við berum nú …
„Það er heill hellingur af útgjöldum sem við berum nú þegar og fallið geta undir varnartengd útgjöld,“ segir forsætisráðherra í samtali við Morgunblaðið. mbl.is/Eyþór

Kristrún Frosta­dótt­ir for­sæt­is­ráðherra seg­ir að varn­artengd út­gjöld á Íslandi verði ekki auk­in í einu vet­fangi, en miðað sé við að þau nái um 1,5% af lands­fram­leiðslu árið 2032, mögu­lega 2035.

Kristrún Frosta­dótt­ir for­sæt­is­ráðherra seg­ir að varn­artengd út­gjöld á Íslandi verði ekki auk­in í einu vet­fangi, en miðað sé við að þau nái um 1,5% af lands­fram­leiðslu árið 2032, mögu­lega 2035.

Hún und­ir­strik­ar að það séu ekki hernaðarút­gjöld, enda Ísland herlaust land og staðfest­ur skiln­ing­ur á því meðal banda­manna Íslands í Atlants­hafs­banda­lag­inu (NATO).

Það eru eft­ir sem áður um 70 millj­arðar króna á ári sem stend­ur, en ekki komið á hreint í hvað þeim fjár­mun­um yrði varið.

Horft til Land­helg­is­gæsl­unn­ar

„Það er heill hell­ing­ur af út­gjöld­um sem við ber­um nú þegar og fallið geta und­ir varn­artengd út­gjöld,“ seg­ir for­sæt­is­ráðherra í sam­tali við Morg­un­blaðið.

„Til dæm­is innviðafjár­fest­ing, þætt­ir með tví­hliða nota­gildi eins og hafn­ar­mann­virki, vega­fram­kvæmd­ir, flug­vell­ir, netör­ygg­is­mál og viðbúnaður við fjölþátta ógn­um,“ nefn­ir Kristrún um slíkt. Hún tek­ur fram að ekk­ert sé klappað og klárt, en sumt séu fjár­fest­ing­ar sem ráðist hefði verið í óháð þessu.

„Það er margt sem við erum að gera hér heima, sem gæti fallið þarna und­ir, og margt sem við þurf­um að gera til þess að treysta varn­ir lands­ins og gæti fallið þarna und­ir.“

Hún staðfest­ir að þar sé m.a. horft til Land­helg­is­gæsl­unn­ar.

„Ég held að það þurfi að styrkja Land­helg­is­gæsl­una. Það hef­ur alltaf verið mín skoðun og er ennþá mín skoðun.“

mbl.is