Yfir sig ástfangin af eiginmanninum eftir 22 ára hjónaband

Poppkúltúr | 11. júní 2025

Yfir sig ástfangin af eiginmanninum eftir 22 ára hjónaband

Hollywood-hjónin Christy Turlington og Ed Burns fögnuðu ástinni um liðna helgi, en 22 ár eru liðin frá því þau gengu í það heilaga.

Yfir sig ástfangin af eiginmanninum eftir 22 ára hjónaband

Poppkúltúr | 11. júní 2025

Ástin lifir að eilífu!
Ástin lifir að eilífu! Samsett mynd

Hollywood-hjón­in Christy Turlingt­on og Ed Burns fögnuðu ást­inni um liðna helgi, en 22 ár eru liðin frá því þau gengu í það heil­aga.

Hollywood-hjón­in Christy Turlingt­on og Ed Burns fögnuðu ást­inni um liðna helgi, en 22 ár eru liðin frá því þau gengu í það heil­aga.

Of­ur­fyr­ir­sæt­an birti færslu á In­sta­gram-síðu sinni í til­efni dags­ins þar sem hún óskaði eig­in­manni sín­um hjart­an­lega til ham­ingju með áfang­ann og deildi fal­leg­um kossam­ynd­um af þeim hjón­um í gegn­um árin.

„22 ára gift. 2 börn í há­skóla. 2 loðin gælu­dýr. Of marg­ar minn­ing­ar til að telja en nokkr­ir sæt­ir koss­ar til að minna okk­ur á hvar við byrjuðum og hversu langt við höf­um komið sam­an,“ skrif­ar Turlingt­on við myndaserí­una.

Hjón­in giftu sig þann 7. júní 2003 eft­ir þriggja ára sam­band. Turlingt­on og Burns ætluðu upp­runa­lega að ganga í hjóna­band í októ­ber 2001 en þau ákváðu að fresta brúðkaup­inu eft­ir hryðju­verka­árás al-Kaída í Banda­ríkj­un­um, 11. sept­em­ber 2001.

mbl.is