Deildi nektarmynd í tilefni af sextugsafmælinu

Poppkúltúr | 12. júní 2025

Deildi nektarmynd í tilefni af sextugsafmælinu

Enska leikkonan Elizabeth Hurley fagnaði 60 ára afmæli sínu í fyrradag, þriðjudaginn 10. júní. Í tilefni stórafmælisins birti hún mynd af sér allsnakinni úti í náttúrunni á Instagram-síðu sinni.

Deildi nektarmynd í tilefni af sextugsafmælinu

Poppkúltúr | 12. júní 2025

Elizabeth Hurley er stórglæsileg.
Elizabeth Hurley er stórglæsileg. Skjáskot/Instagram

Enska leik­kon­an El­iza­beth Hurley fagnaði 60 ára af­mæli sínu í fyrra­dag, þriðju­dag­inn 10. júní. Í til­efni stóraf­mæl­is­ins birti hún mynd af sér allsnak­inni úti í nátt­úr­unni á In­sta­gram-síðu sinni.

Hurley, sem lít­ur ekki út fyr­ir að vera degi eldri en 30 ára, bros­ir sínu breiðasta á mynd­inni, enda ör­ugg í eig­in skinni og ást­fang­in upp fyr­ir haus af banda­ríska sveita­söngv­ar­an­um Billy Ray Cyr­us.

Leik­kon­an, sem er einna þekkt­ust fyr­ir hlut­verk sitt í kvik­mynd­inni Aust­in Powers: In­ternati­onal Man of Mystery, frá ár­inu 1997, hef­ur lengi vakið at­hygli fyr­ir ung­legt út­lit, enda ekki hrukku að sjá né grátt hár.

„Til ham­ingju með af­mælið ég! Þetta ár hef­ur verið ótrú­legt ferðalag. 30. árið mitt að vinna með með Estée Lau­der, 30. árið mitt sem alþjóðleg­ur sendi­herra her­ferðar gegn brjóstakrabba­meini, 20 ára af­mæli El­iza­beth Hurley Beach og... ég er ást­fang­in,“ skrif­ar Hurley meðal ann­ars við mynd­ina. 

Færsla leik­kon­unn­ar vakti, eins og við mátti bú­ast, mikla at­hygli á sam­fé­lags­miðlasíðunni en tug­ir þúsunda hafa „lækað“ við mynd­ina og fjöl­marg­ir hafa einnig óskað Hurley til ham­ingju með dag­inn í at­huga­semd­ar­kerf­inu, þar á meðal leik­kon­an Sarah Michelle Gell­er og of­ur­fyr­ir­sæt­an Heidi Klum.

mbl.is