Dóttir Wilsons minnist föður síns

Poppkúltúr | 12. júní 2025

Dóttir Wilsons minnist föður síns

Bandaríska söng- og sjónvarpskonan Carnie Wilson missti föður sinn, tónlistarmanninn og forsprakka hljómsveitarinnar Beach Boys, í gær, miðvikudaginn 11. júní.

Dóttir Wilsons minnist föður síns

Poppkúltúr | 12. júní 2025

Wendy Wilson, Brian Wilson og Carnie Wilson.
Wendy Wilson, Brian Wilson og Carnie Wilson. Skjáskot/Instagram

Banda­ríska söng- og sjón­varps­kon­an Carnie Wil­son missti föður sinn, tón­list­ar­mann­inn og forsprakka hljóm­sveit­ar­inn­ar Beach Boys, í gær, miðviku­dag­inn 11. júní.

Banda­ríska söng- og sjón­varps­kon­an Carnie Wil­son missti föður sinn, tón­list­ar­mann­inn og forsprakka hljóm­sveit­ar­inn­ar Beach Boys, í gær, miðviku­dag­inn 11. júní.

Carnie, hvað þekkt­ust sem liðsmaður poppsveit­ar­inn­ar Wil­son Phillips, minnt­ist föður síns í ein­lægri færslu sem hún birti á In­sta­gram-síðu sinni í gær­dag.

„Ég á eng­in orð til að lýsa sorg­inni sem ég finn fyr­ir núna. Faðir minn var hver ein­asta trefja í lík­ama mín­um. Millj­ón­ir manna munu minn­ast hans allt þar til heim­ur­inn end­ar.

Ég er hepp­in að hafa verið dótt­ir hans og haft sál­ar­sam­band við hann sem mun lifa áfram að ei­lífu. Ég hef aldrei fundið fyr­ir svona sárs­auka áður en ég veit að hann er að hvíla sig þarna uppi í himna­ríki... eða kannski að spila á pí­anóið fyr­ir ömmu Au­dree, móður sína. Ég mun birta eitt­hvað annað fljót­lega en þetta er allt sem hend­ur mín­ar leyfa mér að skrifa núna. Ég elska þig pabbi... ég sakna þín svo mikið nú þegar,” skrifaði Carnie við fal­lega fjöl­skyldu­mynd.

Marg­ir hafa vottað Carnie og fjöl­skyldu henn­ar ein­læga samúð sína, þar á meðal leik­kon­urn­ar Chris­sy Metz og Krist­in Chenoweth, tón­list­ar­kon­an Nancy Wil­son og leik­ar­inn Alec Baldw­in.

View this post on In­sta­gram

A post shared by Carnie Wil­son (@carnie68)

mbl.is