„Þeir leyfðu okkur að vera eins og hluti af samfélaginu,“ segir Diana Al Barouki um þær móttökur sem hún, Dana Zaher El Deen og Ngan Kieu Tran, fengu frá Íslendingum er þær komu hingað til lands árið 2022.

Ngan kom frá Víetnam og Diana og Dana frá Sýrlandi. Þær kynntust svo allar í Fjölbrautaskólanum við Ármúla og útskrifuðust þaðan nýverið með glæsibrag; Ngan sem dúx skólans, Diana sem semídúx og Dana með meðaleinkunnina 9,18.
Þá hlutu þær allar viðurkenningar fyrir námsárangur í hinum ýmsu fögum.
Í þætti Dagmála fara þær yfir hvernig tekið var á móti þeim er þær komu hingað til lands.
„Allir Íslendingar hjálpuðu okkur mjög mikið og við fengum mjög góðar móttökur,“ segir Dana og tekur jafnframt fram að þær séu mjög þakklátar. Þá segjast þær vilja gefa af sér til samfélagsins.
„Af því að Ísland gaf okkur mjög mikið,“ segir Diana.
Þáttinn má sjá í heild sinni hér að neðan: