Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, segir það óvanalegt að starfsáætlun Alþingis sé felld úr gildi þegar jafn mikil vinna er eftir innan nefnda Alþingis og raunin er núna.

Ingibjörg segir í samtali við mbl.is að ákveðnar þreifingar hafi átt sér stað á meðal formanna þingflokka um það hvenær þinglok skuli verða frá því að starfsáætlun þingsins var felld úr gildi í lok seinustu viku.
Stjórnarandstaðan hefur að sögn Ingibjargar ítrekað kallað eftir því að ríkisstjórnin forgangsraði þeim málum sem brýnust eru sem liggja fyrir á þinginu en hún segir þá forgangsröðun ekki vera komna fram.
Ingibjörg situr í allsherjar- og menntamálanefnd og velferðarnefnd þingsins. Hún segir eitthvað af málum eftir í þeim nefndum þó að mesta álagið sé á atvinnuveganefndinni en meðal mála á borði atvinnuveganefndar er hækkun veiðigjalda þar sem mikill fjöldi gesta hefur komið fyrir nefndina.
„Reglan er yfirleitt þannig að þegar starfsáætlun er tekin úr sambandi, þá er bara eitthvað uppsóp eftir í nefndum og þá yfirleitt gestakomur búnar. Það er ekki staðan núna. Það er enn verið að dæla inn nýjum málum og ég skil ekki vegferðina hjá þessari ríkisstjórn,“ segir Ingibjörg.
Mikill fjöldi mála liggur fyrir þinginu nú þegar líða fer að seinni hluta júnímánaðar og enn er ekkert í hendi varðandi það hvenær þinglok verða.
„Það er venjan að starfsfólk þingsins fari í frí í júlí. Ef eitthvað mikið ber undir er haldið áfram en ég veit ekki hvort fordæmi séu fyrir því. Við finnum að það er stress hjá stjórnarflokkunum. Þau eru að átta sig á því sem við höfum bent á í langan tíma,“ segir Ingibjörg aðspurð að því hve lengi þing gæti staðið.