Sverrir ráðinn skrifstofustjóri Alþingis

Alþingi | 13. júní 2025

Sverrir ráðinn skrifstofustjóri Alþingis

Sverrir Jónsson hefur verið ráðinn skrifstofustjóri Alþingis. Sverrir tekur við embættinu 1. ágúst en þá lætur núverandi skrifstofustjóri, Ragna Árnadóttir, af embætti.

Sverrir ráðinn skrifstofustjóri Alþingis

Alþingi | 13. júní 2025

Sverrir Jónsson.
Sverrir Jónsson. Ljósmynd/Alþingi

Sverr­ir Jóns­son hef­ur verið ráðinn skrif­stofu­stjóri Alþing­is. Sverr­ir tek­ur við embætt­inu 1. ág­úst en þá læt­ur nú­ver­andi skrif­stofu­stjóri, Ragna Árna­dótt­ir, af embætti.

Sverr­ir Jóns­son hef­ur verið ráðinn skrif­stofu­stjóri Alþing­is. Sverr­ir tek­ur við embætt­inu 1. ág­úst en þá læt­ur nú­ver­andi skrif­stofu­stjóri, Ragna Árna­dótt­ir, af embætti.

Sverr­ir var val­inn úr hópi 20 um­sækj­enda en tveir drógu um­sókn sína til baka í ráðning­ar­ferl­inu, að því er seg­ir í til­kynn­ingu á vef Alþing­is.

Sverr­ir Jóns­son lauk BA-gráðu í hag­fræði og at­vinnu­lífs­fræði frá Há­skóla Íslands, MPA-prófi í op­in­berri stjórn­sýslu frá sama skóla og hef­ur auk þess stundað nám í leiðtogaþjálf­un við Oxfor­d­há­skóla. Sverr­ir hef­ur frá ár­inu 2024 starfað sem sviðsstjóri sviðs sta­f­rænna um­bóta hjá Skatt­in­um. Þar áður gegndi hann starfi fram­kvæmda­stjóra rekstr­ar hjá EFTA, þar sem hann bar ábyrgð á rekstri og innri þjón­ustu sam­tak­anna í Brus­sel, Genf og Lúx­em­borg. Þá starfaði hann í fjár­mála- og efna­hags­ráðuneyt­inu, m.a. sem skrif­stofu­stjóri skrif­stofu rekstr­ar og innri þjón­ustu og síðar kjara- og mann­sýslu rík­is­ins. Sam­hliða því var hann formaður samn­inga­nefnd­ar rík­is­ins.

Víðtæk reynsla og framúrsk­ar­andi hæfni í mann­leg­um sam­skipt­um

„Að mati for­sæt­is­nefnd­ar hef­ur Sverr­ir viðtæka stjórn­un­ar­reynslu, ríka um­bóta­hugs­un og hef­ur sýnt fram á framúrsk­ar­andi hæfni í mann­leg­um sam­skipt­um. Þá býr Sverr­ir yfir traustri þekk­ingu á stjórn­skip­an Íslands, hlut­verki Alþing­is og sam­spili hinna þriggja greina rík­is­valds­ins.

Sér­stök þriggja manna ráðgef­andi hæfn­is­nefnd fór yfir og lagði mat á hæfni um­sækj­enda um embættið og tók viðtöl við þá um­sækj­end­ur sem upp­fylltu hæfnis­kröf­ur aug­lýs­ing­ar­inn­ar. Nefnd­in skilaði skýrslu til þriggja manna und­ir­nefnd­ar for­sæt­is­nefnd­ar og gerði grein fyr­ir mati sínu á því hvaða um­sækj­end­ur nefnd­in teldi hæf­asta til að gegna embætti skrif­stofu­stjóra Alþing­is. Und­ir­nefnd for­sæt­is­nefnd­ar féllst á niður­stöður hæfn­is­nefnd­ar og tók viðtöl við þá um­sækj­end­ur sem hæfn­is­nefnd­in gerði til­lögu um. Að lokn­um þeim viðtöl­um lagði und­ir­nefnd­in til við full­skipaða for­sæt­is­nefnd að Sverr­ir yrði ráðinn í embætti skrif­stofu­stjóra. Til­lag­an var samþykkt á fundi for­sæt­is­nefnd­ar Alþing­is í dag,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni. 

mbl.is