Veiðigjaldafrumvarpið var aðalræðuefnið undir fundarliðnum fundarstjórn forseta á Alþingi í dag. Þar tókust þingmenn meirihlutans og stjórnarandstöðunnar á í orðastríði.
Veiðigjaldafrumvarpið var aðalræðuefnið undir fundarliðnum fundarstjórn forseta á Alþingi í dag. Þar tókust þingmenn meirihlutans og stjórnarandstöðunnar á í orðastríði.
Veiðigjaldafrumvarpið var aðalræðuefnið undir fundarliðnum fundarstjórn forseta á Alþingi í dag. Þar tókust þingmenn meirihlutans og stjórnarandstöðunnar á í orðastríði.
Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins og nefndarmaður í atvinnuveganefnd, hóf umræðuna á því að gagnrýna að beiðni um að fá Skattinn fyrir atvinnuveganefnd hefði verið hafnað í morgun. Sagði Bergþór útreikninga frá Skattinum sýna töluverðar skekkjur í útreikningum atvinnuvegaráðuneytisins varðandi frumvarpið.
Því ætti að tryggja að Skatturinn gæti komið til fundar við nefndina og útskýrt til að mynda hvar mistök atvinnuvegaráðuneytisins lægju.
Því næst kom Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og 2. varaformaður nefndarinnar, fram og tók undir orð Bergþórs.
„Ég vil einnig nefna það að maður upplifir vinnubrögðin í háttvirtri atvinnuveganefnd þannig að ekki sé hægt að líkja því við annað en algjört ofbeldi, og það þegar svona grundvallarupplýsingar eru að koma fram nánast á síðustu klukkutímunum, eins og eru að koma frá Skattinum, sem varða grundvallaratriði í þessu máli, og okkur er hafnað um að fá þá á fund nefndarinnar,“ sagði Jón.
Þá sagði hann að fjöldi annarra umsagnaraðila hefði einnig ekki fengið tækifæri til að koma fyrir nefndina, og nefndi jafnframt að Byggðastofnun hefði verið hafnað ítrekað. Sömuleiðis hefði fjármálafyrirtækjum, sem öll væru byrjuð að reikna sig inn í áhrif veiðigjaldanna, verið hafnað.
„Svona getum við talið upp listann endalaust, virðulegur forseti, og það er ekki hægt að líkja þessu við annað en algjört ofbeldi í vinnubrögðum. Fyrir utan það, náttúrlega, hversu hróplega óvönduð vinnubrögð er um að ræða í þessu mikilvæga máli.“
Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í nefndinni, tók undir orð Jóns. Sagði Njáll Trausti að gera þyrfti miklu betur en gert hefði verið þegar kæmi að vinnu við veiðigjöldin. Það væri eins og verið væri að reyna að klára vinnuna eins hratt og hægt væri.
Næstur tók til máls formaður nefndarinnar, Sigurjón Þórðarson.
Sagði hann að vinna væri hafin við nefndarálit þar sem tillit yrði tekið til þeirra sjónarmiða sem kæmu fram í upplýsingum frá Skattinum.
Þá sagði hann það fáránlegt að menn skyldu vera að „kvarta og kveina“ yfir gestakomum nefndarinnar, sem væru yfir 50 talsins. Þá væri „væl og skæl“ fullorðinna manna á þinginu þeim ekki til sóma þegar verið væri að vanda til vinnubragða í málinu.
Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingmaður Samfylkingarinnar, tók til máls skömmu síðar og minnti á að málið hefði fengið ítarlega umfjöllun í nefndum þingsins.
„Svo þegar það á að afgreiða málið þá er allt ómögulegt, allt er órætt og eftir að fá gesti. Þetta er náttúrlega bara firra,“ sagði þingmaðurinn, sem tók jafnframt fram að hann óttaðist að minnihlutinn væri nú einfaldlega að reyna að stoppa málið því þeir væru því ósammála.
„Þetta snýst ekki um formið. Þetta snýst um það að háttvirtir þingmenn minnihlutans eru að standa vörð um sérhagsmuni stórútgerðarinnar, vilja ekki að veiðigjaldinu sé hróflað og eru því að festa sig í forminu.
Háttvirtur forseti. Ég tel þetta miður að vera að beina þessum orðum til þín eða háttvirts formanns atvinnuveganefndar, því hér er vandað til verka hjá öllum nema stjórnarandstöðunni.“
Gagnrýni stjórnarandstöðunnar hélt þó áfram. Þar steig meðal annars Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fram og sagði að „væl og skæl“ kæmi frá meirihlutanum vegna þess að stjórnarandstaðan væri að sinna sínu lýðræðislega hlutverki.
Þá kæmi hvert mál á fætur öðru frá ríkisstjórninni sem væri illa unnið, illa ígrundað og með lélegan rökstuðning.
Jón Gunnarsson hélt gagnrýni sinni einnig áfram. Sagði hann gestafjölda nefndarinnar vafasaman og að óskað hefði verið eftir lista yfir þá gesti sem hefðu komið fyrir nefndina á þriðjudag. Sá listi væri enn ekki kominn.
Þá væri það lítilsvirðing gagnvart fulltrúum almennings, sérfræðingum, ríkisstofnunum og sveitarfélögum að þeim væri neitað um að koma fyrir nefndina.