„Allavega eitthvað samtal komið af stað“

Alþingi | 14. júní 2025

„Allavega eitthvað samtal komið af stað“

Þingflokksformaður Miðflokksins, Bergþór Ólason, segir ekkert enn farið að skýrast um komandi þinglok en að minnsta kosti sé samtal á milli þingflokksformanna varðandi þau komið af stað.

„Allavega eitthvað samtal komið af stað“

Alþingi | 14. júní 2025

Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins.
Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins. mbl.is/Eyþór

Þing­flokks­formaður Miðflokks­ins, Bergþór Ólason, seg­ir ekk­ert enn farið að skýr­ast um kom­andi þinglok en að minnsta kosti sé sam­tal á milli þing­flokks­formanna varðandi þau komið af stað.

Þing­flokks­formaður Miðflokks­ins, Bergþór Ólason, seg­ir ekk­ert enn farið að skýr­ast um kom­andi þinglok en að minnsta kosti sé sam­tal á milli þing­flokks­formanna varðandi þau komið af stað.

Hlé var gert á þing­fundi um klukk­an hálf fjög­ur í dag svo að for­seti þings­ins og þing­flokks­for­menn gætu rætt næstu skref í dag­skrá þings­ins og stóð sá fund­ur yfir í tæpa klukku­stund.

Bergþór seg­ir eng­ar sér­stak­ar ákv­arðanir hafa verið tekn­ar á fund­in­um og að enn sé ekk­ert farið að skýr­ast varðandi þinglok.

Of snemmt að segja

Hann tek­ur þó fram að bú­ast megi við mörg­um sam­bæri­leg­um fund­um næstu daga.

„Það er alla­vega eitt­hvað sam­tal komið af stað eins og sést á þess­um fund­ar­frest­un­um í þingsal,“ seg­ir Bergþór en bæt­ir við að of snemmt sé að segja hvernig því sam­tali muni vinda fram.

Er enn ekk­ert farið að skýr­ast hvenær þinglok verða?

„Það verður í öllu falli vænt­an­lega gert hlé um mánaðamót­in en svo verður rest auðvitað bara að koma í ljós,“ seg­ir Bergþór.

mbl.is