Veiðigjaldafrumvarpið var afgreitt úr atvinnuveganefnd Alþingis í morgun. Í framhaldinu fer það í aðra umræðu á þinginu.

Eiríkur Björn Björgvinsson, þingmaður Viðreisnar og 1. varaformaður nefndarinnar, segir fundinn hafa gengið mjög vel í morgun og að samtölin hafi verið málefnaleg.
„Nefndarálitið var reifað með tilheyrandi breytingartillögum. Við fengum viðbrögð frá minnihlutanum og það var mjög málefnalegt og fínt samtal sem við áttum í morgun,“ segir Eiríkur Björn, spurður út í fundinn, og bætir við að allt hafi verið unnið á lýðræðislegan hátt og með góðu samtali.
Forseti Alþingis ákveður í framhaldinu hvenær önnur umræða veiðigjaldafrumvarpsins verður sett á dagskrá og kveðst Eiríkur Björn eiga von á fjörlegri og málefnalegri umræðu þar.
Hann segir markmiðið vitaskuld vera að ljúka við afgreiðslu frumvarpsins á yfirstandandi þingi. „Þetta er eitt af stóru málum ríkisstjórnarinnar og við leggjum metnað okkar í að reyna að klára þetta. Svo verður umræðan og tíminn að leiða það í ljós.“