Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur lagt fram beiðni um að forseti Alþingis hlutist til um að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra eigi samtal við þingheim um þá alvarlegu stöðu sem komin er upp á milli Ísraels og Íran.

„Mér finnst eðlilegt að við slíkar aðstæður komi utanríkisráðherra og eigi samtal við þingið. Það hefur iðulega verið gert þegar svona stórir viðburðir gerast á alþjóðavettvangi,“ segir Hildur í samtali við mbl.is.
Hún tekur þó fram að flokkurinn sé meðvitaður um að stutt sé til þingloka og því muni stjórnarandstaðan vera tilbúin til þess að semja um lengd slíks dagskrárliðs á þinginu.
„En þetta var bara eingöngu út af því að það er alvanalegt að þegar stórir og alvarlegir viðburðir eru að gerast á alþjóðavettvangi þá er eðlilegt að utanríkisráðherra eigi samtal við þingið um það.“
„Ég hef ekki fengið nein viðbrögð við þessari beiðni og ég hafði hugsað mér að ganga á eftir henni í dag,“ segir Hildur að lokum.