Umdeildum þingfundi frestað

Alþingi | 15. júní 2025

Umdeildum þingfundi frestað

Þingfundi var rétt í þessu frestað fram á morgun og hefst þá aftur klukkan 15.

Umdeildum þingfundi frestað

Alþingi | 15. júní 2025

Bergþór Ólason í ræðustóli Alþingis í dag.
Bergþór Ólason í ræðustóli Alþingis í dag. mbl.is/Ólafur Árdal

Þing­fundi var rétt í þessu frestað fram á morg­un og hefst þá aft­ur klukk­an 15.

Þing­fundi var rétt í þessu frestað fram á morg­un og hefst þá aft­ur klukk­an 15.

Fund­ur­inn sem hófst klukk­an 13 í dag var nokkuð óvenju­leg­ur af þeim sök­um að um var að ræða annað skipti sem boðað er til þing­fund­ar á sunnu­degi í sögu lýðveld­is­ins.

Þó að svo­kölluð bók­un 35 hafi verið á dag­skrá fund­ar­ins fór stærst­ur hluti hans í umræður um störf þings­ins.

Brýt­ur gegn krist­inni hefð

Þing­menn stjórn­ar­and­stöðunn­ar voru marg­ir nokkuð ósátt­ir með ákvörðun for­seta þings­ins, Þór­unn­ar Svein­bjarn­ar­dótt­ur, um að boða til fund­ar á sunnu­degi. Jón Gunn­ars­son, þingmaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, talaði til að mynda um að ábyrgð henn­ar væri mik­il á því for­dæmi sem hún setti nú.

Þá vísaði Karl Gauti Hjalta­son, þingmaður Miðflokks­ins, í Konst­antín­us keis­ara sem „gaf út fyr­ir­mæli árið 321 um að sunnu­dag­ur­inn ætti að vera hvíld­ar­dag­ur“. Karl Gauti sagði rík­is­stjórn­ina nú brjóta þá kristnu hefð.

mbl.is