Hafa endurheimt yfir 6.000 lík

Úkraína | 16. júní 2025

Hafa endurheimt yfir 6.000 lík

Yfirvöld í Kænugarði hafa greint frá því að þeim hafi borist 1.245 lík úkraínskra ríkisborgara frá Rússlandi í dag. Alls hefur Úkraína endurheimt yfir 6.000 lík undanfarna viku.

Hafa endurheimt yfir 6.000 lík

Úkraína | 16. júní 2025

Innanríkisráðherra Úkraínu hefur sakað Rússland um að flækja viljandi ferlið …
Innanríkisráðherra Úkraínu hefur sakað Rússland um að flækja viljandi ferlið við að bera kennsl á líkin. AFP

Yf­ir­völd í Kænug­arði hafa greint frá því að þeim hafi borist 1.245 lík úkraínskra rík­is­borg­ara frá Rússlandi í dag. Alls hef­ur Úkraína end­ur­heimt yfir 6.000 lík und­an­farna viku.

Yf­ir­völd í Kænug­arði hafa greint frá því að þeim hafi borist 1.245 lík úkraínskra rík­is­borg­ara frá Rússlandi í dag. Alls hef­ur Úkraína end­ur­heimt yfir 6.000 lík und­an­farna viku.

Um er að ræða síðasta áfang­ann í skipt­um sem samið var um milli ríkj­anna fyrr í mánuðinum í Ist­an­búl. Rússlandi bár­ust í dag 51 lík rúss­neskra her­manna frá Úkraínu og hef­ur alls fengið til baka 78 lík.

Rúss­neska varn­ar­málaráðuneytið grein­ir þó frá því að 1.248 lík hafi verið af­hent Úkraínu í dag, sem eru þrem­ur fleiri en Kænug­arður seg­ist hafa mót­tekið.

Seg­ir Rússa vilj­andi gera auðkenn­ingu erfiðari

Igor Klymen­ko, inn­an­rík­is­ráðherra Úkraínu, hef­ur sakað Rúss­land um að flækja vilj­andi ferlið við að bera kennsl á lík­in og nefn­ir t.a.m. að lík­ams­hlut­ar úr sama líki séu stund­um í mis­mun­andi pok­um.

Hann bæt­ir við að Úkraína hafi einnig fengið lík­ams­leif­ar rúss­neskra her­manna í bland við úkraínska á fyrri stig­um skipt­anna í síðustu viku.

Rúss­land hef­ur lýst sig reiðubúið að af­henda önn­ur 2.239 lík úkraínskra her­manna til viðbót­ar við það sem samið var um í Ist­an­búl.

mbl.is