Munu ekki leyfa minnihlutanum að banna breytingar

Alþingi | 16. júní 2025

Munu ekki leyfa minnihlutanum að banna breytingar

„Við munum ekki leyfa minnihlutanum að banna okkur að gera breytingar í þessum málaflokki. Um það snýst þetta mál hér inni. Við skulum hafa það alveg á hreinu.“

Munu ekki leyfa minnihlutanum að banna breytingar

Alþingi | 16. júní 2025

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, fóru yfir …
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, fóru yfir veiðigjöldin í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Samsett mynd/mbl.is/Eyþór

„Við mun­um ekki leyfa minni­hlut­an­um að banna okk­ur að gera breyt­ing­ar í þess­um mála­flokki. Um það snýst þetta mál hér inni. Við skul­um hafa það al­veg á hreinu.“

„Við mun­um ekki leyfa minni­hlut­an­um að banna okk­ur að gera breyt­ing­ar í þess­um mála­flokki. Um það snýst þetta mál hér inni. Við skul­um hafa það al­veg á hreinu.“

Þetta sagði Kristrún Frosta­dótt­ir for­sæt­is­ráðherra í svari sínu við fyr­ir­spurn Guðrún­ar Haf­steins­dótt­ur, for­manns Sjálf­stæðis­flokks­ins, er hún gerði veiðigjöld­in að umræðuefni í óund­ir­bún­um fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag.

Guðrún sagði það grund­vall­ar­atriði í lýðræðis­ríki að lög­gjaf­inn fengi rétt­ar, skýr­ar og full­nægj­andi upp­lýs­ing­ar áður en hann tek­ur af­stöðu til laga­frum­varpa. Í umræðum um veiðigjalda­frum­varpið hafi komið fram sí­fellt skýr­ari mynd og Alþingi ekki fengið heild­stæðar og rétt­ar upp­lýs­ing­ar.

Staðreynd­ir máls­ins grafal­var­leg­ar

Guðrún sagði staðreynd­ir máls­ins grafal­var­leg­ar. Rík­is­stjórn­in hafi lagt fram frum­varp sem eigi að tvö­falda veiðigjald með rök­stuðningi sem hafi reynst „óná­kvæm­ur, óskýr og í sum­um til­fell­um bein­lín­is rang­ur“. Nýj­ustu gögn frá skatt­in­um sýni að ríkið muni inn­heimta rúm­lega 26 millj­arða króna í veiðigjöld á þessu ári. „Það er tvö­föld­un á gjald­inu og rúm­lega það.“

Fjár­hæðin skipti ekki aðeins máli held­ur einnig vinnu­brögðin. Í gögn­um frá skatt­in­um sem lögð voru fyr­ir at­vinnu­vega­nefnd hafi verið miðað við lægri töl­ur en birt­ust síðar op­in­ber­lega, án þess að fram kæmi hvaða for­send­ur hefðu breyst, hvers vegna og hvenær. Sam­hliða hafi komið fram full­yrðing­ar í frum­varp­inu sjálfu um er­lenda sér­fræðigrein­ingu sem hafi aldrei átt sér stað.

„For­sæt­is­ráðherra ber póli­tíska ábyrgð á öll­um störf­um rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Hún er sú sem á að standa vörð um fag­leg vinnu­brögð, gegn­sæi og virðingu þings­ins. Alþingi get­ur ekki fjallað af ábyrgð um mál, hvað þá tekið upp­lýsta af­stöðu, þegar upp­lýs­ing­ar eru annað hvort rang­ar, óljós­ar eða hrein­lega ekki lagðar fram.

Því spyr ég hæst­virt­an for­sæt­is­ráðherra: Er þetta sú stjórn­sýsla sem hún vill standa fyr­ir? Hver er henn­ar afstaða til þess­ara vinnu­bragða og hvað hyggst hún gera til að tryggja að slík mála­færsla end­ur­taki sig ekki?“ spurði Guðrún.

Eng­inn viti „ná­kvæm­lega hversu hátt þetta veiðigjald verður“

Í svari sínu sagði Kristrún ráðuneytið, Fiski­stofu og skatt­inn vera á sömu blaðsíðu varðandi veiðigjöld­in og það hafi komið fram við út­tekt máls­ins. Benti hún þá á að Hanna Katrín Friðriks­son at­vinnu­vegaráðherra væri á staðnum til að svara fyr­ir málið.

Kristrún sagði málið snú­ast um aðferðafræði og það væri klass­ískt atriði í póli­tík að reyna að láta efni snú­ast um eitt­hvað annað en það snýst um.

Þá sagði hún eng­an í saln­um, Fiski­stofu, ráðuneytið, skatt­inn eða út­gerðina vita ná­kvæm­lega hvert veiðigjaldið verði á næsta ári, vegna þess að eng­inn viti hver afl­inn í sjón­um eða markaðsverðmæti verður.

„Þess­ir aðilar eru samt all­ir bún­ir að sam­ræma sín­ar for­send­ur, eins og geng­ur og ger­ist, af því að eng­inn veit um framtíðina. Þá skipta for­send­urn­ar lyk­il­atriði, lyk­il­máli í þessu sam­hengi, og mér skilst að þar hafi eitt­hvert vantað upp á. Það er búið að sam­ræma það til marks um hversu vel hef­ur verið tekið í all­ar þær at­huga­semd­ir sem hafa komið inn varðandi þetta mál.“

Rík­is­stjórn­in sé sjálf að af­vega­leiða umræðuna

Guðrún mót­mælti þá orðum Kristrún­ar um af­vega­leiðingu minni­hlut­ans og sagði eng­an vera að af­vega­leiða umræðuna „nema bara rík­is­stjórn­in sjálf“.

Í kjöl­far umræðna, bæði í þingsal og á op­in­ber­um vett­vangi, vakna fleiri og brýnni spurn­ing­ar, ekki síst vegna orða at­vinnu­vegaráðherra í nýbirtri grein, þar sem hún sak­ar hags­muna­öfl um að reyna að þvinga fram aðra niður­stöðu í laga­setn­ingu Alþing­is og seg­ir: „Við því verður brugðist af full­um þunga“.

„Það eru stór orð og þau eru ekki sett fram í ræðu held­ur í riti. Þessi yf­ir­lýs­ing vakn­ar ekki í tóma­rúmi. Hún kem­ur frá sama ráðherra og hef­ur verið sakaður um að af­vega­leiða Alþingi með rang­færsl­um og gagna­leynd í mik­il­vægu laga­frum­varpi.

Það er því eðli­legt að for­sæt­is­ráðherra, leiðtogi stjórn­ar­inn­ar, skýri fyr­ir þing­inu hvaða viðbrögð þetta eru sem boðuð eru af full­um þunga. Hver er boðskap­ur­inn til þeirra sem gagn­rýna stjórn­völd? Hvað þýðir það að bregðast við þegar verið er að fjalla um lög­lega og mál­efna­lega gagn­rýni á stjórn­völd og frum­vörp? Ætlar rík­is­stjórn­in að gera meira til að bregðast við af full­um þunga?“ spurði Guðrún.

Rík­is­stjórn­in muni klára málið „af full­um þunga“

„Ég veit satt best að segja ekki hversu djúpt ég á að fara inn í þetta mál,“ svaraði Kristrún að öðru sinni og hélt áfram: „Ég fékk inn í mitt póst­hólf – lík­lega eins og fleiri þing­menn – fyr­ir helgi, al­var­leg­ar ásak­an­ir á hend­ur at­vinnu­vegaráðherra og ráðuneyt­is­ins um að þau séu að leyna gögn­um. Þar er verið að svara fyr­ir sig. Það er al­var­legt þegar stofn­an­ir í sam­fé­lag­inu eru sakaðar um að leyna gögn­um fyr­ir ein­hverj­um.

Get­um við ekki haldið okk­ur við staðreynd­ir máls og póli­tísk­an ágrein­ing? Það vita það all­ir hér inni að minni hlut­inn vill banna meiri hlut­an­um að hækka veiðigjöld. Það er það sem þetta snýst um. Þetta snýst ekki um krón­ur og aura,“ sagði Kristrún.

Það sem við rík­is­stjórn­in hygg­ist gera „af full­um þunga“ sé að klára þetta mál og fylgja eft­ir meiri­hluta­vilja þjóðar.

„Við mun­um ekki leyfa minni hlut­an­um að banna okk­ur að gera breyt­ing­ar í þess­um mála­flokki. Um það snýst þetta mál hér inni. Við skul­um hafa það al­veg á hreinu.“

mbl.is