Tvenn ummæli dómsmálaráðherra voru aðalræðuefnið í fundarliðnum fundarstjórn forseta á Alþingi fyrr í dag. Var hún þar annars vegar beðin um afsökunarbeiðni og hins vegar beðin um að draga ummæli sín til baka.
Tvenn ummæli dómsmálaráðherra voru aðalræðuefnið í fundarliðnum fundarstjórn forseta á Alþingi fyrr í dag. Var hún þar annars vegar beðin um afsökunarbeiðni og hins vegar beðin um að draga ummæli sín til baka.
Tvenn ummæli dómsmálaráðherra voru aðalræðuefnið í fundarliðnum fundarstjórn forseta á Alþingi fyrr í dag. Var hún þar annars vegar beðin um afsökunarbeiðni og hins vegar beðin um að draga ummæli sín til baka.
Athygli vakti þegar það sló í brýnu á milli Þorgbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra og Ingibjargar Isaksen þingflokksformanns Framsóknarflokksins á föstudag.
Í óundirbúnum fyrirspurnartíma spurði Ingibjörg Þorbjörgu um frumvarp er varðaði víxlverkun örorkugreiðslna og enduðu umræður á milli þeirra með þeim hætti Þorbjörg spurði Ingibjörgu hvort hún kynni ekki að skammast sín.
Hafði þá Ingibjörg spurt Þorbjörgu tvisvar sinnum hvort hún teldi að frumvarpið fæli í sér eignaupptöku sem myndi brjóta gegn eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar.
Þorbjörg kvaðst átta sig á því að stjórnarandstaðan væri illa stemmd vegna þess hvernig málin væru að spilast með veiðigjöldin.
„Það er auðvitað algerlega óþolandi að menn séu að leika sér að því að koma hingað upp og væna ráðherra ríkisstjórnarinnar um að brjóta stjórnarskrá vitandi vits. Þetta er bara slík óhæfa að það er með algerum ólíkindum. Þú ert væna ráðherra hér um að brjóta stjórnarskrá vitandi vits. Mig langar til að segja: Kanntu ekki að skammast þín,“ spurði ráðherra.
Ingibjörg tók fyrst til máls í fundarliðnum fundarstjórn forseta fyrr í dag.
„Í ljósi þess að við getum átt okkar góðu daga og við getum átt okkar slæmu daga, þá langar mig til þess að leitast til þess að hæstvirtur dómsmálaráðherra biðjist afsökunar á algerlega óviðeigandi ummælum sínum hér í óundirbúnum fyrirspurnum til mín,“ sagði Ingibjörg.
Tók þá Þorbjörg næst til máls
„Mér finnst mér algerlega að meinalausu að biðjast afsökunar hafi háttvirtur þingmaður tekið orðum mínum illa sem ég heyri að hún gerði.“
Þakkaði þá Ingibjörg fyrir afsökunarbeiðnina og sagðist kunna að meta hana. Hún tók hins vegar fram að hún hefði ekki verið að ásaka „einn eða neinn um eitt eða neitt heldur einfaldlega að vitna í umsagnir í tengslum við málið og spyrja já og nei varðandi faglegt mat dómsmálaráðherra.“
„En góður bragur. Takk kærlega fyrir. Afsökunarbeiðni móttekinn,“ sagði hún að lokum.
Ljóst er þó að önnur ummæli Þorbjargar komu illa við ýmsa þingmenn og minntist Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins, að Þorbjörg hefði sagt í eldhúsdagsumræðum Alþingis á miðvikudag að ekki hefði þurft sakamálarannsókn í kjölfar sölu ríkisstjórnarinnar á rúmlega 45% eignarhlut sínum í Íslandsbanka í maí.
Byrjaði Þorbjörg svar sitt á að þakka Bergþóri fyrir áhyggjur sínar af líðan þingmanna Sjálfstæðisflokksins.
„Ég nefndi í eldhúsdagsumræðum að mér þætti gott að við ættum fjármálaráðherra sem veit hvað hann syngur. Ég nefndi að þessari ríkisstjórn tókst að selja banka án þess að samfélagið færi allt á hliðina.“
Því næst rifjaði Þorbjörg upp síðustu bankasölu.
„Það leiddi til afsagnar bankastjóra. Það leiddi til afsagnar fjármálaráðherra. Það leiddi til hæstu sektar í sögu fjármálaeftirlitsins í Íslandssögunni allri. Það leiddi til álits umboðsmanns Alþingis um vanhæfi ráðherra. Það leiddi til skýrslu Ríkisendurskoðunar.
En auðvitað er það alveg rétt að það fór enginn í fangelsi og það er bara fín athugasemd og ég skal glöð gangast við því að svo var ekki. En var salan farsæl, sem var nú kannski punkturinn í þessu öllu, hafði hún pólitískar og fjárhagslegar afleiðingar? Svarið við því blasir við okkur öllum.“
Virtust þau ummæli ekki falla í kramið hjá þeim Jóni Gunnarssyni og Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, þingmönnum Sjálfstæðisflokksins.
Sagði Jón dómsmálaráðherra vera að gera lítið úr sjálfri sér með því að koma fram með þeim hætti sem hún gerði iðulega í garð sjálfstæðismanna. Það væri hins vegar ekki að valda sjálfstæðismönnum vanlíðan.
„Frekar veldur það nú einhverri vorkunn gagnvart því hvernig hæstvirtum dómsmálaráðherra virðist líða í sínum störfum, bæði sem þingmaður áður en hún fór í ráðherrastól og núna sem hæstvirtur ráðherra,“ sagði Jón
„Auðvitað sæmir það síður ráðherra að vera á þessum vettvangi að gefa ýmislegt í skyn sem engar innstæður eru fyrir, svo sem það að sakamálarannsókn hafi farið fram og hún sem fyrrverandi saksóknari, löglærð manneskja og situr í þessu embætti í dag, veit betur. En hún á alla okkar samúð.“
Áslaug Arna sagði að afsökunarbeiðnir Þorbjargar í umræddum málum hefðu verið svokallaðar efsökunarbeiðnir.
Þá sagði hún sjálfstæðismönnum líða almennt það vel að ekki væri endilega þörf að fá afsökun frá Þorbjörgu varðandi ummæli hennar.
„En það væri bragur á því og að mínu mati verður hæstvirtur dómsmálaráðherra að koma hér upp í pontu og draga einfaldlega þessi orð sín til baka, ekki með þeim orðum og svona lítillækkun eins og hún fór hér með um fangelsistal og annað sem mér finnst ekki sæma. Mér finnst að hæstirtur dómsmálaráðherra þurfi að koma hér upp í pontu og draga orð sín til baka um sakamálarannsókn. Síðan getum við seinna meir rætt Íslandsbanka, sölurnar báðar, árangur, og þá peninga sem fóru á endanum í ríkiskassann.“