Ummæli sem Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, lét falla í gær í fjölmiðlum eru ekki svaraverð að mati ráðherra.
Ummæli sem Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, lét falla í gær í fjölmiðlum eru ekki svaraverð að mati ráðherra.
Ummæli sem Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, lét falla í gær í fjölmiðlum eru ekki svaraverð að mati ráðherra.
Hildur sagði við Vísi í gær að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur kæmi fram af vanvirðingu við þingið og notaði til þess sömu rök og Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti og Donald Trump Bandaríkjaforseti.
Hildur gagnrýndi þau rök sem byggja eingöngu á því að ríkisstjórnin hafi umboð valdhafa og sagði ríkisstjórnina sýna skort á virðingu fyrir lýðræðislegu hlutverki stjórnarandstöðunnar og Alþingis.
„Þessi rök heyrast núna vestanhafs frá Trump nokkrum og Erdogan. Og ég leyfi mér að efast um að ríkisstjórnin vilji leita í þá verkfærakistu,“ sagði Hildur við Vísi.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra, var undrandi á svip er blaðamaður mbl.is bar ummæli Hildar undir hann.
„Þessi ummæli dæma sig bara sjálf. Ég ætla ekki að svara þeim að öðru leyti,“ segir Jóhann.
Ekki liggur fyrir hvenær þingmenn komast í sumarfrí en þingið hefði átt að klárast samkvæmt dagskrá 13. júní. Jóhann Páll er bjartsýnn á það að þingmál hans komist í gegn áður en þinginu lýkur.
Meðal mála hjá honum er frumvarp um einföldun leyfisveitinga, gjaldtaka vegna Náttúruverndarstofnunar, breytingar á lögum um vatnshlot sem myndi flýta fyrir Hvammsvirkjun og breytingar á raforkulögum.
„Ég er mjög bjartsýnn á að þingið nái að klára þessi mál sem ég hef lagt fram og mælt fyrir vegna þess að það er algjör samstaða um þau í stjórnarmeirihlutanum. Í orði kveðnu hefur líka verið stuðningur við mörg þeirra af hálfu minnihlutans. Flest þessara mála eru komin í gegnum nefndir þingsins sem hefur venjulega verið helsti þröskuldurinn og var á síðasta kjörtímabili helsti þröskuldurinn við að klára mál,“ segir Jóhann.