Útgöngubann áfram í Los Angeles

Útgöngubann áfram í Los Angeles

Útgöngubann að nóttu til verður áfram í borginni Los Angeles í „nokkra daga í viðbót”, sagði Karen Bass borgarstjóri í gær.

Útgöngubann áfram í Los Angeles

Donald Trump Bandaríkjaforseti | 16. júní 2025

Karen Bass, borgarstjóri Los Angeles.
Karen Bass, borgarstjóri Los Angeles. AFP/Mario Tama

Útgöngu­bann að nóttu til verður áfram í borg­inni Los Ang­eles í „nokkra daga í viðbót”, sagði Kar­en Bass borg­ar­stjóri í gær.

Útgöngu­bann að nóttu til verður áfram í borg­inni Los Ang­eles í „nokkra daga í viðbót”, sagði Kar­en Bass borg­ar­stjóri í gær.

Þá höfðu mót­mæli staðið yfir í borg­inni í níu daga vegna aðgerða Banda­ríkja­stjórn­ar gegn ólög­leg­um inn­flytj­end­um en fjöl­marg­ir af rómönsk­um upp­runa búa í Los Ang­eles. 

Frá mótmælum gegn ríkisstjórn Trumps í Los Angeles um helgina.
Frá mót­mæl­um gegn rík­is­stjórn Trumps í Los Ang­eles um helg­ina. AFP/​Ringo Chiu

Mót­mæl­in hafa að mestu farið friðsam­lega fram og ein­skorðast við lítið svæði í miðborg Los Ang­eles. Eitt­hvað hef­ur þó verið um of­beldi, sem for­set­inn Don­ald Trump hef­ur notað sem ástæðu til að senda þangað fjög­ur þúsund manna þjóðvarðalið og 700 land­gönguliða.

Bass setti á út­göngu­bann 10. júní sem gild­ir á um­ræddu svæði í miðborg­inni þar sem mót­mæl­in hafa farið fram. Í gær sagðist hún vona að of­beldið þar muni fjara út.

Þjóðvarðliðar fyrir fram þinghús Los Angeles í gær.
Þjóðvarðliðar fyr­ir fram þing­hús Los Ang­eles í gær. AFP/​Apu Gomes

Í viðtali við sjón­varps­stöðina KTLA sagðist Bass ekki vita hversu lengi út­göngu­bannið verður í gildi.

„Við vit­um ekki hversu marg­ar aðgerðir gegn inn­flytj­end­um verða, við vit­um ekki hvernig þær fara fram og í hvert sinn sem það ger­ist gríp­ur um sig mik­il reiði í borg­inni,” sagði hún.

mbl.is