Brad Pitt segist hafa misst af samkynhneigðri reynslu

Poppkúltúr | 25. júní 2025

Brad Pitt segist hafa misst af samkynhneigðri reynslu

Hollywood-leikarinn Brad Pitt var ansi hreinskilinn um kynhneigð sína í hlaðvarpsþættinum Armchair Expert with Dax Shepard þegar hann sagðist hafa misst af „samkynhneigðri reynslu“ fyrst hann var byrjaður með skartgripahönnuðinum Ines de Ramon.

Brad Pitt segist hafa misst af samkynhneigðri reynslu

Poppkúltúr | 25. júní 2025

Brad Pitt ásamt kærustu sinni Ines de Ramon fyrir framan …
Brad Pitt ásamt kærustu sinni Ines de Ramon fyrir framan ljósmyndara við Evrópufrumsýningu kvikmyndarinnar F1 The Movie, 23. júní. HENRY NICHOLLS / AFP

Hollywood-leik­ar­inn Brad Pitt var ansi hrein­skil­inn um kyn­hneigð sína í hlaðvarpsþætt­in­um Armchair Expert with Dax Shep­ard þegar hann sagðist hafa misst af „sam­kyn­hneigðri reynslu“ fyrst hann var byrjaður með skart­gripa­hönnuðinum Ines de Ramon.

„Þú veist, ég hef aldrei fengið reynslu af sam­kyn­hneigð,“ sagði leik­ar­inn í þætt­in­um á mánu­dag.

„Ég eig­in­lega missti af þeim glugga, en ef ég hefði prófað hefði það ekki verið þú,“ grínaðist Pitt og átti þar við þátta­stjórn­and­ann Dax Shep­ard.

Pitt, sem er 61 árs, sagði einnig frá því að hann hafi sótt sinn fyrsta AA-fund í kjöl­far erfiðs skilnaðar við leik­kon­una Ang­el­inu Jolie. Hann viður­kenndi að hafa farið „á hnén“ vit­andi að hann þyrfti að gera veru­leg­ar breyt­ing­ar á ein­hverj­um sviðum lífs­ins.

Áfeng­is­drykkja leik­ar­ans er ein megin­á­stæða end­is­ins á tveggja ára hjóna­bandi þeirra Jolie. 

 Page Six

mbl.is