Eiga enga sök, en bera allan skaðann

Skólakerfið í vanda | 28. júní 2025

Eiga enga sök, en bera allan skaðann

„Við erum slökust og staðan fer versnandi, og hún versnar hraðar hér en víðast annars staðar,“ skrifar Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, í dálkinum úr ólíkum áttum í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins og bætir við að allan skaðann beri börnin, sem enga eigi sök.

Eiga enga sök, en bera allan skaðann

Skólakerfið í vanda | 28. júní 2025

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir hefur áhyggjur af stöðu menntunar á …
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir hefur áhyggjur af stöðu menntunar á Íslandi, sem skeri sig úr með slakri frammistöðu. mbl/Karítas Sveina Guðjónsdóttir

„Við erum slök­ust og staðan fer versn­andi, og hún versn­ar hraðar hér en víðast ann­ars staðar,“ skrif­ar Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ir, þingmaður Sjálf­stæðis­flokks, í dálk­in­um úr ólík­um átt­um í Sunnu­dags­blaði Morg­un­blaðsins og bæt­ir við að all­an skaðann beri börn­in, sem enga eigi sök.

„Við erum slök­ust og staðan fer versn­andi, og hún versn­ar hraðar hér en víðast ann­ars staðar,“ skrif­ar Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ir, þingmaður Sjálf­stæðis­flokks, í dálk­in­um úr ólík­um átt­um í Sunnu­dags­blaði Morg­un­blaðsins og bæt­ir við að all­an skaðann beri börn­in, sem enga eigi sök.

Þór­dís Kol­brún vitn­ar í út­tekt Efna­hags- og fram­fara­stofn­un­ar, OECD, þar sem fjallað er um hnign­un grund­vallar­færni ís­lenskra nem­enda á síðustu tveim­ur ára­tug­um og hún stefni í hættu efna­hags­legri vel­ferð og lífs­gæðum.

Í grein­inni seg­ir hún að hér hafi verið búið til kerfi, sem skili óviðun­andi niður­stöðum og um það sé eng­um að kenna en okk­ur sjálf­um.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir er ómyrk í máli í grein …
Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ir er ómyrk í máli í grein sinni um mennta­mál. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

„Ísland get­ur held­ur ekki kennt efna­hags­legri fá­tækt um þenn­an slaka ár­ang­ur. Við erum rík. Og þegar kem­ur að fjár­veit­ing­um þá er grunn­skóla­kerfið okk­ar dýr­ara í rekstri en nán­ast alls staðar ann­ars staðar,“ skrif­ar Þór­dís Kol­brún. „Hér er því um að ræða brot­lend­ingu á þeirri hug­mynda­fræði sem ráðið hef­ur för við stjórn skóla­mála á Íslandi.“

Hún seg­ir að hægt sé að benda fing­ir á stjórn­mála­menn, emb­ætt­is­menn, fagaðila og fræðimenn og kenn­ara og for­ystu þeirra.

„En hverj­ir eru það sem eiga enga sök en bera all­an skaðann?“ spyr hún. „Jú, það eru börn sem fá ekki þann und­ir­bún­ing sem þau þurfa og for­eldr­ar þeirra sem treysta skól­um lands­ins fyr­ir vits­muna­legu upp­eldi barna sinna.“

Grein Þór­dís­ar Kol­brún­ar má lesa í heild sinni í Sunnu­dags­blaði Morg­un­blaðsins.

mbl.is