Ráðherrar vilja undanskilja hljóð- og myndefni

AFP

Menn­ing­ar­málaráðherr­ar Frakk­lands, Þýska­lands og tólf annarra ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins hafa kallað eft­ir því að fyr­ir­hugaðar fríversl­un­ar­viðræður við Banda­rík­in nái ekki til hljóð- og mynd­efn­is. Yf­ir­lýs­ing þess efn­is kem­ur degi eft­ir að Dav­id Ca­meron, for­sæt­is­ráðherra Bret­lands, lýsti því yfir að ekki ætti að taka neinn mála­flokka út fyr­ir sviga í viðræðunum. Frakk­ar hafa haft for­ystu um að hljóð- og mynd­efni verði und­an­skilið í viðræðunum.

Fram kem­ur í frétt AFP að rík­in sem um ræðir séu auk Frakk­lands og Þýska­lands Belg­ía, Aust­ur­ríki, Búlga­ría, Kýp­ur, Ung­verja­land, Ítal­ía, Pól­land, Portúgal, Rúm­en­ía, Slóvakía, Slóven­ía og Spánn. Haft er eft­ir Kar­el De Gucht, viðskipta­stjóra Evr­ópu­sam­bands­ins, að stefnu­mót­un sem miði að því að standa vörð um evr­ópska menn­ingu og fjöl­miðlun gagn­vart áhrif­um Hollywood yrðu ekki hluti af viðræðunum.

Frakk­ar hafa þess utan einnig sagt að ekki komi til greina að opna fyr­ir inn­flutn­ing til Evr­ópu­sam­bands­ins á land­búnaðar­af­urðum sem meðhöndlaðar hefðu verið með horm­ón­um eða verið erfðabreytt. Und­ir það hafa þýsk­ir bænd­ur tekið. Þá vilja Frakk­ar ekki að fríversl­un­ar­viðræðurn­ar nái til varn­ar­mála.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert