Fríverslunarviðræður hugsanlega í hættu

Viviane Reding, dómsmálastjóri ESB.
Viviane Reding, dómsmálastjóri ESB. AFP

Dóms­mála­stjóri Evr­ópu­sam­bands­ins, Vi­via­ne Red­ing, hef­ur varað við því að viðræður á milli sam­bands­ins og Banda­ríkj­anna um fríversl­un­ar­samn­ing kunni að vera í hættu vegna upp­lýs­inga um njósn­ir Banda­ríkja­manna í Evr­ópu.

Fram kem­ur í frétt AP-frétta­veit­unn­ar að það sé skoðun hátt­settra ráðamanna í Evr­ópu­sam­band­inu að njósna­málið hafi „splundrað“ því trausti sem þurfi að vera fyr­ir hendi til þess að viðræðurn­ar geti haldið áfram. „Til þess að svo metnaðarfull­ar og flókn­ar viðræður geti skilað ár­angri þarf að ríkja traust á milli beggja aðila,“ sagði Red­ing í ræðu sem hún flutti í Yale-há­skóla í Banda­ríkj­un­um í gær.

Bú­ist er við að Evr­ópu­sam­bandið fari í það minnsta fram á að banda­rísk stjórn­völd styrki veru­lega lög­gjöf sína um friðhelgi einka­lífs­ins og veiti neyt­end­um mun meira vald yfir því hvernig fyr­ir­tæki not­færi sér per­sónu­leg gögn þeirra. Enn­frem­ur að slík rétt­indi nái einnig til rík­is­borg­ara Evr­ópu­sam­bands­ins og að þeir geti jafn­vel kært banda­rísk fyr­ir­tæki fyr­ir þarlend­um dóm­stól­um.

Fram kem­ur í frétt­inni að Evr­ópu­sam­bandið hafi lengi gert slík­ar kröf­ur til Banda­ríkja­stjórn­ar en eft­ir að banda­ríski upp­ljóstr­ar­inn Edw­ard Snowd­en hafi varpað ljósi á njósn­a­starf­semi Þjóðarör­ygg­is­stofn­un­ar Banda­ríkj­anna (NSA) í Evr­ópu hafi sam­bandið lagt enn rík­ari áhersla á kröf­ur sín­ar í tengsl­um við fríversl­un­ar­viðræðurn­ar. Haft er eft­ir Red­ing að verði Banda­ríkja­menn ekki við þeim gæti það orðið til þess að Evr­ópuþingið myndi stöðva viðræðurn­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert