Gæti skaðað fríverslunarviðræðurnar

Edward Snowden.
Edward Snowden. AFP

Ræði þing­menn á Evr­ópuþing­inu við banda­ríska upp­ljóstr­ar­ann Edw­ard Snowd­en mun það skaða viðræður Evr­ópu­sam­bands­ins og Banda­ríkj­anna um mögu­leg­an fríversl­un­ar­samn­ing. Þetta er haft eft­ir banda­ríska full­trúa­deild­arþing­mann­in­um Mike Rogers á frétta­vefn­um PCWorld.com.

Rogers lét um­mæl­in falla í sam­tali við frétta­menn fyr­ir utan Evr­ópuþingið í Brus­sel í gær. Sagði hann það fyr­ir neðan virðingu þings­ins að ræða við Snowd­en. Evr­ópuþingið hef­ur óskað eft­ir því að Snowd­en, sem stadd­ur er í Rússlandi þar sem hann hef­ur tíma­bundið hæli, ræði í gegn­um myndsíma við nefnd þings­ins sem rann­sak­ar njósn­ir Þjóðarör­ygg­is­stofn­un­ar Banda­ríkj­anna (NSA) um rík­is­borg­ara Evr­ópu­sam­bands­ins.

Haft er eft­ir Evr­ópuþing­mann­in­um Sophie In’t Veld að bak við tjöld­in hafi banda­rísk­ir stjórn­mála­menn sem komið hafi til Brus­sel kallað Snowd­en svik­ara og reynt að þrýsta á þing­menn á Evr­ópuþing­inu að bjóða hon­um ekki að ræða við þing­nefnd­ina. „Þetta er ótrú­legt. Þeir koma hingað til þess að vara okk­ur við því að ræða við hann eða hafa verra af. Við á Evr­ópuþing­inu ákveðum bara sjálf hverja við ræðum við.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert