Ekkert lát á átökum í Mið-Afríkulýðveldinu

Frá átakasvæðum í Mið-Afríkulýðveldinu.
Frá átakasvæðum í Mið-Afríkulýðveldinu. AFP

Að minnsta kosti 75 hafa lát­ist í átök­um á milli krist­inna og mús­líma í bæn­um Boda í Mið-Afr­íku­lýðveld­inu síðan á þriðju­dag­inn í síðustu viku. Mús­lím­ar reistu virki um­hverf­is bæ­inn og hröktu síðan kristna á brott. Ekk­ert lát er á átök­un­um í land­inu sem hafa kostað þúsund­ir manna lífið og fjöldi fólks er á ver­gangi.

Hóp­ur íslamskra öfga­manna sem kall­ar sig Seleka, steypti stjórn lands­ins í mars í fyrra og síðan þá hef­ur óöld ríkt í land­inu. Til­raun­ir franskra og afr­ískra friðargæsluliða til að stilla til friðar hafa eng­an ár­ang­ur borið. Í síðustu viku til­kynnti Alþjóðabank­inn að hann myndi veita Mið-Afr­íku­lýðveld­inu lán upp á hundrað millj­ón­ir Banda­ríkja­doll­ara og á að nota fjár­magnið til að veita íbú­um lands­ins nauðsyn­lega þjón­ustu.

Til­kynnt var um lánið skömmu eft­ir að Cat­her­ine Sam­ba-Panza sór eið sem for­seti Mið-Afr­íku­lýðveld­is­ins, fyrst kvenna, en von­ir hafa verið bundn­ar við að hún muni koma á friði í land­inu.

Fjöl­mörg ríki og alþjóðastofn­an­ir hafa látið í ljós áhyggj­ur af ástand­inu í land­inu, þeirra á meðal er UNICEF, Barna­hjálp Sam­einuðu þjóðanna, sem seg­ir of­beldi gagn­vart börn­um í land­inu vera for­dæma­laust.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert