Segja að dregið hafi úr ofbeldinu

00:00
00:00

Þrátt fyr­ir að her­inn haldi því fram að dregið hafi úr of­beld­inu í Mið-Afr­íku­lýðveld­inu virðist sem frá­sögn­um beri ekki sam­an því að minnsta kosti 75 hafa dáið í bar­dög­um í bæn­um Boda.

Franski her­for­ing­inn Édou­ard Guil­laud heim­sótti höfuðborg lands­ins, Bangui, í gær og sagði hann að lok­inni heim­sókn­inni að dregið hefði úr bar­dög­um milli stríðandi fylk­inga.

Tæpt ár er síðan Seleka-upp­reisn­ar­menn steyptu for­set­an­um, Franco­is Bozize, af stóli. Af hon­um tók við Michel Djotodia, nú­ver­andi for­seti, sem leysti upp Seleka, en marg­ir meðlima hóps­ins héldu áfram að eig­in frum­kvæði og hrylltu borg­ara með morðum, nauðgun­um og rán­um. Til að mæta of­beld­is­mönn­un­um mynduðu kristn­ir eig­in bar­áttu­hópa, sem leiddi til auk­inna átaka í land­inu.

Um 1.600 fransk­ir her­menn eru að störf­um í land­inu og um 5.500 liðsmenn friðargæslu­sveita Afr­íku­banda­lags­ins. 

Cassien Kamat­ari, prest­ur í Boda, seg­ir að of­beldið sé enn mikið þar. Um 1.500 manns hafi leitað skjóls hjá söfnuði hans vegna átaka milli krist­inna og mús­líma.

Um 80% íbú­ar lands­ins eru krist­in en stærst­ur hluti mús­líma í land­inu býr í norður­hluta þess.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert