Börnin hálshöggvin og limlest

Jovachi Mongonou missti báða fætur í sprengjuárás.
Jovachi Mongonou missti báða fætur í sprengjuárás. EPA

Barna­hjálp Sam­einuðu þjóðanna, UNICEF, seg­ir skelfi­legt hvernig farið sé með börn í stríðinu í Mið-Afr­íku­lýðveld­inu. Þau hafa verið lim­lest og drep­in, m.a. háls­höggv­in.

„Land þar sem full­orðnir kom­ast upp með að beita sak­laus börn hroðal­egu of­beldi á sér enga framtíð,“ seg­ir Manu­el Fontaine, svæðis­stjóri UNICEF í Vest­ur- og Mið-Afr­íku.

Starfs­menn UNICEF á svæðinu segj­ast „skelf­ingu lostn­ir“ yfir grimmd­inni og refsi­leys­inu, þegar börn eru drep­in og lim­lest. Þeir segja að sí­fellt fleiri börn séu skot­mark stríðandi fylk­inga vegna trú­ar sinn­ar eða upp­runa.

Að minnsta kosti 133 börn hafa verið drep­in og lim­lest, sum með hrotta­fengn­um hætti, síðustu tvo mánuði. Starfs­menn UNICEF staðfest­ir að í mörg­um til­fell­um séu börn­in háls­höggv­in og lim­lest vís­vit­andi. 

Fontaine seg­ir að refsi­leysið megi ekki viðgang­ast leng­ur.

Mörg börn sem særst hafa í átök­un­um hafa oft ekki kom­ist á sjúkra­hús í tæka tíð. Sí­fellt meiri ringul­reið rík­ir í land­inu en ár er frá því að for­set­an­um var steypt af stóli og við tók upp­reisn­ar­maður sem hafði enga stjórn á ástand­inu. Nú hef­ur Cat­her­ine Sam­ba Panza tekið við for­seta­embætt­inu tíma­bundið. Hún var áður borg­ar­stjóri í höfuðborg­inni Bangui.

Stríðið hef­ur und­an­farna mánuði ein­kennst af átök­um milli krist­inna og mús­líma. Átök hafa geisað ára­tug­um sam­an í Mið-Afr­íku­lýðveld­inu en þetta er fyrsta sinn sem trú­ar­hóp­ar deila af slíkri hörku.

Frakk­ar hafa sent fjöl­mennt herlið til lands­ins en því hef­ur ekki tek­ist að ná tök­um á ástand­inu enn sem komið er. Mann­rétt­inda­sam­tök­in Am­nesty In­ternati­onal segja að þjóðern­is­hreins­an­ir séu hafn­ar og að ástandið fari hríðversn­andi.

Flótta­manna­hjálp Sam­einuðu þjóðanna lýs­ir ástand­inu sem ham­förum sem óger­legt sé að lýsa.

UNICEF segir að á síðustu vikum hafi 133 börn verið …
UNICEF seg­ir að á síðustu vik­um hafi 133 börn verið drep­in eða lim­lest í stríðinu í Mið-Afr­íku­lýðveld­inu. EPA
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert