Ki-moon heimsækir Mið-Afríkulýðveldið

Catherine Samba-Panza, forseti Mið-Afríkulýðveldisins, tekur á móti Ban Ki-Moon, framkvæmdastjóra …
Catherine Samba-Panza, forseti Mið-Afríkulýðveldisins, tekur á móti Ban Ki-Moon, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. AFP

Ban Ki-moon, fram­kvæmda­stjóri Sam­einuðu þjóðanna, kom í óvænta heim­sókn til Bangui, höfuðborg­ar Mið-Afr­íku­lýðveld­is­ins, í morg­un. Hann mun funda með nýj­um for­seta lands­ins, Cat­her­ine Sam­ba Panza, síðar í dag.

Þau munu meðal ann­ars ræða ástandið í land­inu og hvernig hægt sé að binda enda á átök­in sem þar hafa geisað und­an­farið, að því er seg­ir í frétt AFP um málið.

Panza hef­ur kallað eft­ir því að fleiri friðargæsluliðar verði send­ir á átaka­svæðin í land­inu. Um sex þúsund her­menn hafa verið við friðargæslu, en þeir koma frá Afr­ík­u­sam­band­inu, og þá hafa jafn­framt um tvö þúsund fransk­ir her­menn reynt að koma á friði í land­inu.

Þeim hef­ur hins veg­ar tek­ist illa að koma í veg fyr­ir það sem Sam­einuðu þjóðirn­ar kalla þjóðern­is­hreins­an­ir á mús­lím­um, sem eru í mikl­um minni­hluta í Mið-Afr­íku­lýðveld­inu.

Al­gjör glundroði hef­ur verið í land­inu und­an­farið ár, eða síðan upp­reisn­ar­menn boluðu for­set­an­um Franco­is Bozize frá völd­um. Landið er nú meira og minna stjórn­laust og hafa upp­reisn­ar­menn gengið um drep­andi, nauðgandi og ræn­andi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert