Friðargæslulið til Mið-Afríkulýðveldisins

Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna.
Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. AFP

Örygg­is­ráð Sam­einuðu þjóðanna samþykkti í dag að senda um tólf þúsund manna friðargæslulið til Mið-Afr­íku­lýðveld­is­ins. Átök þar í landi á milli krist­inna manna og múslima hafa vakið ótta meðal margra, þar á meðal Ban Ki-moon, fram­væmda­stjóra Sam­einuðu þjóðanna.

Hann hef­ur hvatt stjórn­völd og alþjóðasam­fé­lagið til að gera allt sem í valdi þeirra stend­ur til að koma í veg fyr­ir þjóðarmorð, að því er seg­ir í frétt AFP.

Í fund­ar­gerð ör­ygg­is­ráðsins kem­ur fram að tíu þúsund her­menn verði send­ir til Mið-Afr­íku­lýðveld­is­ins og um 1.800 lög­reglu­menn.

Ban Ki-moon kom í óvænta heim­sókn til Bangui, höfuðborg­ar Mið-Afr­íku­lýðveld­is­ins, sein­ustu helgi. Hann fundaði þar með nýj­um for­seta lands­ins, Cat­her­ine Sam­ba Panza.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert