Umkringd af skæruliðum

00:00
00:00

Pu­la­ar-þjóðin er inn­lyksa í þorp­inu Boda í Mið-Afr­íku­lýðveld­inu. Auk Pu­la­ar-fólks­ins kom­ast mús­lím­ar sem búa í þorp­inu hvorki lönd né strönd. Allt um­hverf­is bíða kristn­ir skæru­liðar. Fransk­ir og afr­ísk­ir friðargæsluliðar gæta fólks­ins í þorp­inu en út­litið er slæmt

Ólga er enn í land­inu. 1,6 millj­ón­ir manna eru án nægi­legs mat­ar. Svo virðist sem viðvera alþjóðlegu friðargæsluliðanna hafi lítið að segja. Marg­ir eru á flótta. Börn ganga ekki skóla og fá ekki nauðsyn­leg­ar bólu­setn­ing­ar.

Stríðið í Mið-Afr­íku­lýðveld­inu er nú aðallega á milli krist­inna og mús­líma. Bak­ara-hóp­ur­inn rændi völd­um fyr­ir rúmu ári. Þeim var komið frá og bráðabirgðastjórn komið á. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert