18 handteknir vegna námuslyssins

Syrgjandi kona í grafreitnum í þorpinu Soma, þar sem flestir …
Syrgjandi kona í grafreitnum í þorpinu Soma, þar sem flestir námumannanna fengu hinstu hvílu. 301 létust í námuslysinu. AFP

Lögreglan í Tyrklandi hefur handtekið 18 manns vegna rannsóknar á harmleiknum í námunni þar sem 301 lét lífið. Framkvæmdastjórn námufyrirtækisins Soma Holdings er meðal hinna handteknu. Þetta kemur fram á vef BBC.

Bæði stjórnvöld í Tyrklandi og eigendur námunnar fullyrða að slysið hafi ekki orðið vegna vanrækslu við öryggisreglur. Forsætisráðherrann Recep Tayyip Erdogan hefur verið gagnrýndur fyrir að gera lítið úr slysinu og taka það ekki nærri sér. Ekki hjálpaði til þegar myndir voru birtar af aðstoðarmanni hans sparkandi í mótmælendur við námuna.

Slysið varð þegar sprengja sprakk ofan í námunni, eldur kviknaði í kjölfarið og eiturgas fyllti göngin þar sem 787 verkamenn voru við störf. Krufningar hafa leitt í ljós að dánarorsök flestra hinna látnu var kolsýringseitrun.

Sjá einnig: „Þurfti að klofa yfir lík vina minna“

Syrgjendur í grafreit í bænum Soma þar sem flestir námumannanna …
Syrgjendur í grafreit í bænum Soma þar sem flestir námumannanna sem létust fengu hinstu hvílu. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert