Mannskæð átök í Mið-Afríkulýðveldinu

Hermaður frá Austur-Kongó stendur vörð í höfuðborg Mið-Afríkulýðveldisins, Bangui.
Hermaður frá Austur-Kongó stendur vörð í höfuðborg Mið-Afríkulýðveldisins, Bangui. AFP

Að minnsta kosti 22 manns lét­ust í átök­um í Mið-Afr­íku­lýðveld­inu á mánu­dag og þriðju­dag. Hóp­ar mús­líma ann­ars veg­ar og krist­inna hins veg­ar tak­ast á um yf­ir­ráð í land­inu. Átök­in fyrr í vik­unni voru aðallega í þorp­inu Liwa. Í þeim særðust að minnsta kosti þrjá­tíu manns. 

Blóðug styrj­öld hef­ur geisað í land­inu mánuðum sam­an. Þúsund­ir eru á flótta. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert